Fréttabréf desember 2022
23. desember 2022
Fréttabréf Stafræns Íslands desember 2022.
Gleðilega hátíð
Viðburðarríkt ár er senn á enda þar sem Ísland.is hefur vaxið, dafnað og bætt bæði upplýsingar og stafræna þjónustu til landsmanna. Fjöldi stofnana hefur flutt bæði vef sinn og/eða þjónustu á Ísland.is og þar með styrkt upplýsingagjöf til landsmanna og stuðlað að því að einfalda líf fólks.
Hraði í nútímasamfélagi er alltaf að verða meiri og meiri og kröfur á aðlögunarhæfni okkar eykst jafnhraðan. Þetta á sömuleiðis við um kröfur okkar á góða þjónustu og upplýsingagjöf. Það sem þykir sjálfsagt í dag var jafnvel aðeins fjarlægur draumur fyrir ári síðan. Það er því hollt fyrir okkur öll að nýta hátíðina í að staldra aðeins við, líta um öxl og rifja upp hversu miklu við höfum áorkað.
Í næsta fréttabréfi munum við fara yfir stærstu verkefni ársins 2022 en í þessu má sjá brot af þeim verkefnum sem gefin hafa verið út á síðustu vikum. Verkefnin eru mörg og missýnileg en öll mikilvægur hlekkur í að bæta opinbera stafræna þjónustu.
Leyfi fyrir flugeldasýningar stafrænt
Stafrænt leyfi til að halda flugeldasýningar er nú að finna á Ísland.is sem hluti af stóru samstarfi við Umhverfisstofnun.
Hvað er Stafrænt pósthólf Ísland.is og fyrir hvern?
Stafrænt pósthólf Ísland.is er komið á fullt í innleiðingu hjá stofnunum.
Bætt aðgengi fatlaðra að Stafrænu pósthólfi Ísland.is
Stafrænum hindrunum rutt úr vegi: Persónulegir talsmenn geta nú aðstoðað fatlað fólk við að nálgast stafræn erindi á Ísland.is.
Lesa frétt um bætt aðgengi fatlaðra
Bókin sem aldrei týnist - stafrænt ökunám
Stórum áfanga í stafvæðingu ökunáms er nú náð með virkjun stafrænnar ökunámsbókar Samgöngustofu.
Lesa frétt um stafrvæðingu ökunáms
Rafrænar þinglýsingar í fasteignaviðskiptum
Undirbúningur í fullum gangi fyrir rafræna þinglýsingu fasteignakaupa.
Rafrænar greiðslur í umsóknarkerfi Ísland.is
Fiskistofa var fyrst til að greiða rafrænt í umsóknarkerfi Ísland.is. Prókúruhafi getur því gengið frá greiðslum fyrir hönd fyrirtækis. Stofnunum stendur til boða að opnað sé á prókúruumboð fyrir umsóknir sem krefjast greiðslu í umsóknarkerfi Ísland.is.
Velkomin Fiskistofa
Fiskistofa hefur flutt vef sinn á Ísland.is og eykur þar með enn á upplýsingagjöf og fjölbreytni síðunnar. Velkomin Fiskistofa!
Velkominn ríkislögmaður
Ríkislögmaður sá hag sinn í að flytja vef sinn á Ísland.is og tekur nú þátt í að styrkja vefinn. Velkominn ríkislögmaður.
Meðal verkefna Stafræns Íslands þessa dagana eru:
Vegabréfið þitt - birting upplýsinga á Mínum síðum Ísland.is og í appi Ísland.is
Stafrænt örorkuskírteini
Stafræn umsókn um vegabréf
Umboðskerfi fyrir stofnanir
Eigendaskipti ökutækis
Umsókn um ökuritakort
Panta skráningarnúmer ökutækis
Endurnýjun ökuréttinda
Skráning leiðbeinanda fyrir æfingaakstur
Rafræn erfðafjárskýrsla
Rafræn þinglýsinga á afsali fasteigna
Rafræn þinglýsing á kaupsamningum fasteigna
Ákvöðun um skipti dánarbús
Beiðni um könnun hjónavígsluskilyrða
Birting ökutækja og fasteigna í Ísland.is appinu
Birting útskriftargagna frá Háskóla Íslands á Mínum síðum Ísland.is
Birting á lögmannaskrá á Ísland.is
Birting á fasteignasalaskrá á Ísland.is
Umsókn um rekstarleyfi veitinga og gististaða
Ökutímaskráningar ökukennara
Heimagisting opna fyrir nýtingaryfirlit 2022
Rafræn skil á ársreikningum til Ríksendurskoðunar
Tveggja ára vegvísir stafrænnar þjónustu sveitafélaga á Ísland.is
Fjárhagsaðstoð Sveitafélaga á Ísland.is.
Vefur Landlæknis á Ísland.is
Vefur Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Ísland.is
Vefur Ríkiskaupa á Ísland.is