Fréttabréf desember 2021
21. desember 2021
Jólakveðja og samantekt nýrra verkefna og verkefna í vinnslu í desember 2021.
Gleðilega hátíð
Viðburðarríkt ár er senn á enda en þrátt fyrir það bætast enn stór og smá verkefni sem
einfalda líf fólks og fyrirtækja. Breytingar eru hraðar þessi misserin og því mikilvægt að gefa sér tíma og fara yfir verkefni síðustu mánaða. Í næsta fréttabréfi munum við fara yfir stærstu verkefni ársins 2021 en í þessu má sjá brot af þeim verkefnum sem gefin hafa verið út á síðustu vikum. Verkefnin eru mörg og missýnileg en öll mikilvægur hlekkur í að bæta opinbera stafræna þjónustu.
Fæðingarorlof á Ísland.is
Stafræn umsókn um fæðingarorlof er nú aðgengileg á Ísland.is. Á annað hundrað manns
hafa tekið þátt í notendaprófunum. Umsóknin sækir sjálfvirkt í hin ýmsu kerfi hins opinbera og ryður því brautina fyrir fjölda annarra flókinna umsóknarferla.
Fasteignir á Ísland.is
Þróun á Mínum síðum á Ísland.is er í fullum gangi þar sem haft er að leiðarljósi að
einfalda líf fólks og bæta stafrænt aðgengi að opinberri þjónustu. Fasteignir er nýjasta viðbótin sem veitir fasteignaeigendum aðgengi að upplýsingum um eigin fasteignir.
Frétt á Ísland.is
Ljósmynd eftir Birgi Þór Harðarson.
Greiðsludreifing skulda
Greiðsludrefing opinberra gjalda er komin í raunumhverfi og stýrðar notendaprófanir í fullum
gangi. Á næstu vikum munu einstaklingar geta lagt upp eigin greiðsludreifingu í sjálfsafgreiðslu.
Meðal verkefna Stafræns Íslands þessa dagana eru:
Rafræn þinglýsing kröfuhafabreytinga – í framleiðslu
App fyrir Ísland.is - BETA prófanir
Tilkynning um slys til Sjúkratrygginga – Í framleiðslu
Innskráning á BETA Mínar síður fyrir fyrirtæki
Innskráning á BETA Mínar síður fyrir börn
Umboðskerfi fyrir stofnanir
Tengingar stofnana við Strauminn (X-Road)
Umsókn um almenna gjafsókn og lögbundna gjafsókn