Fréttabréf apríl 2024
15. apríl 2024
Fréttabréf Stafræns Íslands apríl 2024
Stafræn vegferð í tölum
Met eru slegin í hverjum mánuði þegar kemur að heimsóknum á Ísland.is, notkun á umsóknarkerfinu, Innskráningu fyrir alla, Stafræna pósthólfinu og spjallmenninu Aski.
Bæði er að aukast mjög þjónusta sem hægt er að sækja gegnum Ísland.is sem og notendur farnir að tileinka sér stafrænu þjónustuna í auknu mæli.
Mars í tölum:
Spjallmennið Askur svaraði 60 þúsund fyrirspurnum tengdum skattframtali.
Flettingar á Ísland.is voru yfir 2 milljónir.
255 þúsund nýttu sér þjónustuna sem er að finna á Mínum síðum Ísland.is.
Um 1200 þúsund innskráningar voru með Innskráningu fyrir alla.
160 þúsund hafa sótt Ísland.is appið.
Evrópska sjúkratryggingakortið
Íslendingar á leið til Evrópu geta nú sótt um evrópska sjúkratryggingakortið á Ísland.is, nálgast upplýsingar um kortið á Mínum síðum Ísland.is sem og í Ísland.is appinu. Stafrænt aðgengi að upplýsingum tengdum sjúkratryggingakortinu og vegabréfinu eru meðal þess sem munu einfalda líf Íslendinga á ferðalagi.
Lesa nánar um evrópska sjúkratryggingakortið
Opinn fundur um EU Digital Identity Wallet
Skráning er hafin á opinn fund um þátttöku íslenskra aðila í tilraunaverkefninu EU Digital Identity Wallet um stafrænt auðkenningaveski. Fundurinn verður haldinn 16. apríl nk.
Lesa nánar um viðburðinn á stjórnarráðsvefnum
Stafræna veiðikortið
Umhverfisstofnun hefur hafið útgáfu á stafrænum veiðikortum á Ísland.is. Nú getur fólk haldið á veiðar með veiðikortin sín stafræn í símanum sínum. Fjöldi skráðra veiðikorthafa er rétt tæplega 30.000 og að árlega endurnýja 10-12 þúsund manns veiðikort sín.
Lesa nánar um stafrænt veiðikort
TR flytur á Ísland.is
Tryggingastofnun hefur flutt alla sína upplýsingagjöf og þjónustu á vef Ísland.is. Mikill liðsstyrkur kemur með þeirri sérfræðiþekkingu sem starfsfólk TR býr að enda ein af stærstu þjónustustofnunum landsins.
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu á Ísland.is
Bjóðum hina nýstofnuða Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hjartanlega velkomna á Ísland.is
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Meðal verkefna Stafræns Íslands:
Eigendaskipti vinnuvéla og tækja
Endurnýjun ökuréttinda
Mínar síður: Fjármál, hreyfingar á tímabilinu
Mínar síður: Greiðsluáætlun Tryggingastofnunar
Mínar síður – yfirlit yfir greiðslur húsnæðisbóta
Mínar síður – starfsleyfi sýslumanna
Mínar síður – brautskráningargögn Uglu háskóla
Stafræn erfðafjárskýrsla
Rafræn þinglýsing á kaupsamningum fasteigna
Tilkynning um vinnuslys
Umsón um dvalarleyfi
Umsókn um endurnýjun dvalarleyfa ítrun
Umsókn um ellilífeyri
Umsókn um háskóla
Umsókn um ríkisborgararétt ítrun
Umsókn um sannvottun
Vefur Ríkissaksóknara
Vefur Vinnueftirlitsins á Ísland.is