Taflan hér að neðan birtir helstu gjaldflokka Fiskistofu. Gjaldskráin byggir á auglýsingu um gjaldskrá Fiskistofu frá 21. janúar 2025. Ef um misræmi er að ræða gildir sú upphæð sem kemur fram í auglýsingunni.
Allir reikningar Fiskistofu eru rafrænir. Þeir eru aðgengilegir á vefsíðu Ísland.is sem er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Reikningana má alla finna undir „Mínar síður“. Þeir koma bæði fram í pósthólfinu og undir „Fjármál“.
Tímagjald sérfræðings - 25.900 krónur
Tímagjald veiðieftirlitsmanns - 28.200 krónur
Veiðileyfi - 22.000 krónur
Strandveiðigjald - 50.000 krónur
Leyfi til strandveiða, (strandveiðigjald ásamt veiðileyfi) - 72.000 krónur
Leyfi til heimavigtunar afla ásamt úttekt - 261.200 krónur
Leyfi til endurvigtunar afla ásamt úttekt - 233.000 krónur
Leyfi til framkvæmda í eða við veiðivatn - 25.900 krónur
Veiðivottorð - 210 krónur
Vinnsluvottorð - 8.600 krónur
CITES vottorð og leyfi - 25.900 krónur
Daggjald vegna veru eftirlitsmanns um borð í skipi - 120.600 krónur
Daggjald vegna eftirlits með löndun erlendis - 101.400 krónur
Úttekt á búnaði til vinnslu afla um borð í skipi - 169.300 krónur
Úttekt vegna breytingar á leyfi eða endurnýjun - 176.600 krónur
Úthlutun aflaheimilda á tilboðsmarkaði - 16.300 krónur
Úthlutun aflaheimilda (skel- og rækjubætur) - 5.300 krónur
Úthlutun byggðakvóta - 42.800 krónur
Flutningur á aflamarki og krókaaflamarki - 6.500 krónur
Rafrænn flutningur á aflamarki og krókaaflamarki - 480 krónur
Flutningur á aflahlutdeild ásamt staðfestingu - 30.300 krónur
Árgjald þjónustusamnings um rafrænar tilkynningar á flutningi aflamarks - 51.900 krónur