Úthlutun aflahlutdeilda í grásleppu
10. janúar 2025
Fiskistofa hefur úthlutað aflahlutdeildum í grásleppu.
Úthlutunin er gerð í samræmi við lög um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu).
Þeir sem fá úthlutað aflahlutdeildum fá formlegt bréf frá Fiskistofu þar sem ákvörðunin er kynnt og verður bréfið sent póstleiðis og í stafrænt pósthólf viðkomandi á Ísland.is.
Fiskistofa hvetur þá sem fengu úthlutun til að kynna sér niðurstöðurnar í bréfinu. Eingöngu verður tekið við erindum og athugasemdum varðandi úthlutunina í gegnum tölvupósfangið fiskistofa@fiskistofa.is.
Í framhaldi úthlutunar aflahlutdeilda mun Fiskistofa úthluta aflamarki í samræmi við reglugerð um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2024/2025 og almanaksárið 2025.
Samantekt yfir úthlutunina er hægt að nálgast á hlekknum Hlutdeild í grásleppu undir liðnum tölulegar samantektir hér á heimasíðunni.