Umsókn um byggðakvóta 2022/2023 (4)
23. mars 2023
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022/2023.
Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskisksipa á fiskveiðiárinu 2022/2023 og vakin er athygli á auglýsingu (2) um sérreglur sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2022/2023.
Úthlutað er fyrir:
Akureyrarbær vegna Grímseyjar
Húnaþing vestra
Kaldrananeshreppur
Strandabyggð
Leiðbeiningar:
Sækja skal um byggðakvóta í gegnum umsóknagátt. Til þess að opna umsóknargáttina þarf að nota kennitölu og íslykil útgerðarinnar. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um.
Niðurstaða umsóknar verður eingöngu birt í pósthólfi umsækjanda inn á Ísland.is
Óski umsækjandi eftir bréfi með öðrum leiðum þarf að senda beiðni um slíkt á fiskistofa@fiskistofa.is.
Staðfesting á samningi um vinnslu afla skal vera undirritaður og staðfestur af sveitarfélagi og honum skilað sem fylgiskjali í umsóknargátt á sama tíma og sótt er um.
Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2023.