Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

Umsókn um byggðakvóta 2021/2022 (8)

26. apríl 2022

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 995/2021 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022.

Fiskistofa logo

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 995/2021 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022.

Auglýst er eftir umsóknum fyrir:

  • Vogar


Umsóknargátt fyrir byggðakvóta

Eyðublað fyrirstaðfestingu á vinnslusamning


Leiðbeiningar:

Sækja skal um byggðakvóta í gegnum gáttina  hér að ofan.  Til þess að opna umsóknareyðublaðið þarf að nota kennitölu og íslykil  útgerðarinnar. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um. 

Staðfesting á samningi um vinnslu afla skal vera undirritaður og staðfestur af sveitarfélagi.

Staðfestingu á vinnslusamningi skal skila sem fylgiskjali í umsóknargátt á sama tíma og sótt er um byggðakvóta.

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi þar sem við á.

Útgerðir eru beðnar að huga sérstaklega að því að skip verður að hafa gilt veiðileyfi við lok umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar 

Umsókn og vinnslusamning er skilað í gegnum rafrænu umsóknargáttina. 
Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2022