Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

Þessi frétt er meira en árs gömul

Strandveiðar og veiðiskylda

22. apríl 2022

Fiskistofa beinir því til útgerða sem eiga skip sem fengu úthlutað aflamarki á fiskveiðiárinu að huga að því hvort veiðiskylda hafi verið uppfyllt, þ.e. að skipið hafi veitt 50% í það minnsta af úthlutuðu aflamarki.

Fiskistofa logo

Senn líður að strandveiðum og opnað verður fyrir umsóknir um strandveiðar í næstu viku. Fiskistofa beinir því til útgerða sem eiga skip sem fengu úthlutað aflamarki á fiskveiðiárinu að huga að því hvort veiðiskylda hafi verið uppfyllt, þ.e. að skipið hafi veitt 50% í það minnsta af úthlutuðu aflamarki.   

Strandveiðiafli telur ekki upp í veiðiskyldu og  óheimilt er að stunda veiðar samkvæmt öðrum leyfum á meðan strandveiðileyfi er í gildi. Það er því mjög mikilvægt að útgerðaraðilar sé meðvitaðir um stöðu veiðiskyldunnar áður en haldið er til strandveiða.