Störf á veiðieftirlitssviði
13. janúar 2025
Fiskistofa óskar eftir að ráða starfsfólk í 3 stöðugildi á veiðieftirlitssviði á starfsstöðvum stofnunarinnar á Ísafirði og Neskaupstað.
Fiskistofa leitar að drífandi, lausnamiðuðu og metnaðarfullu fólki sem hefur áhuga og reynslu af sjávarútvegi. Ef þú ert tilbúin til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í einni af mikilvægustu atvinnugrein landsins, gæti þetta verið starfið fyrir þig.
Helstu verkefni eftirlits:
Eftirlit á sjó: Eftirlitsferðir með skipum af öllum stærðum og gerðum með leyfi til veiða í efnahagslögsögunni, þar á meðal ein til tvær sjóferðir á vinnsluskipum á ári. Í eftirlitsferðum á sjó er meðal annars fylgst með brottkasti, framkvæmdar lengdarmælingar á fiski og öðrum sjávarlífverum. Fylgt eftir skráningu í afladagbók og tillögur gerðar um lokanir veiðisvæða.
Eftirlit í landi: Eftirlit með löndun og vigtun afla á hafnarvog og hjá vigtunarleyfishöfum. Lengdarmælingar og skráning gagna. Úttekt á afurðum vinnsluskipa ásamt stjórnun fjarstýrðra loftfara.
Skrifstofustörf: Skýrslugerð, skráning gagna og vinnsla upplýsinga vegna brotamála.
Önnur verkefni: Starfssviði eftirlits sinnir einnig verkefnum tengdum lax og silungsveiði bæði í sjó og ám ásamt því að hafa eftirlit með malartekju í veiðivötnum.
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi.
Haldgóð reynsla og þekking á sjávarútvegi.
Þekking á sjómennsku kostur.
Góð tölvukunnátta og færni í gagnagreiningu.
Góð íslenskukunnátta.
Góð enskukunnátta.
Greiningarhæfni, nákvæmni og fagmennska.
Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni í teymisvinnu.
Líkamleg og andleg geta til að sinna fjölbreyttum verkefnum.
Hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2025 og allar nánari upplýsingar um störfin er að finna á Starfatorgi: starf í eftirliti á Ísafirði og störf í eftirliti á Neskaupstað.