Skiptimarkaður með aflamark - tilboð óskast
2. febrúar 2023
Skiptimarkaður með aflamark er opinn frá 3 - 10 febrúar.
Skiptimarkaðurinn opnar föstudaginn 3. febrúar 2023 kl. 13 en lokar föstudaginn 10. febrúar 2023 kl 14.
Við mat á tilboðum er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar sem er fyrir þorsk 433,17 kr/kg. Hægt er að gera tilboð í neðangreindar tegundir fyrir aflamark í þorski.
Tegund | Þorskígildi | Magn | Eining |
---|---|---|---|
Kolmunni | 0,08 | 15.205 | Tonn |
Norsk - íslensk síld | 0,15 | 4.898 | Tonn |
Þorskur - NL | 1 | 230.190 | Kíló |
Tilboð er sent í gegnum UGGA. Tilboðsmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Staðfesting er send sjálfkrafa um móttöku tilboðs. Umsækjendur geta afturkallað/hætt við tilboð en tekið er fram að afturköllun á tilboði eftir tilboðsfrest er óheimil.
Ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð.
Hver úthlutun aflaheimilda kostar 14.000 kr. samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu.
Vinsamlega kynnið ykkur reglugerð um skiptimarkað.