Opnað fyrir umsóknir A-flokks úr makríl potti
2. september 2024
Skip í A-flokki geta sótt um viðbótarheimild í makríl til 10. september.
Umsóknir um úthlutun skal senda á fiskistofa@fiskistofa.is þar sem fram kemur fyrir hvaða skip verið er að óska eftir úthlutun á.
Úthlutun þessi byggir á ákvæðum reglugerðar um ráðstöfun 4.000 lesta af viðbótaraflaheimildum í makríl. Samkvæmt reglugerðinni skal Fiskistofa skipta því magni sem ekki hefur verið úthlutað til B-flokks skipa, jafnt til þeirra skipa í A-flokki sem óska eftir úthlutun. Við birtingu þessarar tilkynningar eru 4.000 tonn í pottinum.
Verð aflaheimildanna er jafn veiðigjaldi makríls hverju sinni eða 1,79 kr/kg samkvæmt auglýsingu um veiðigjald 2024.