Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

Óformlegi skötudagurinn er í dag

23. desember 2024

Í dag mun stór hluti landsmanna setjast að borðum og snæða skötu og höfum við í því tilefni tekið saman nokkrar upplýsingar um þessa áhugaverðu tegund.

Jólaskata - Fiskistofa

Ýmsar upplýsingar um skötuna:

  • Á árinu 2024 hefur verið landað 383.603 kg af skötu.

  • 36% af aflanum var veitt með botnvörpu, 35% með línu og 21% með dragnót.

  • Aflahæsta löndunarhöfnin á árinu er Sandgerðishöfn.

  • Skötur gjóta eggjum sem mörg okkar þekkja sem "Pétursskip". Þessi egg eru oft að finna í fjörum um allan heim.

  • Skötur hafa eina af stærstu lifrum í dýraríkinu, sem getur verið allt að 1/4 af líkamsþyngd þeirra. Þetta hjálpar þeim að halda sér nálægt hafsbotni.

  • Skötur hafa þyrnótta húð sem verndar þær gegn rándýrum.

  • Sumar skötutegundir geta lifað í allt að 100 ár.

  • Það eru yfir 200 tegundir af skötum um allan heim.

Landaður skötuafli eftir árum - Fiskistofa
Tíu aflahæstu löndunarhafnir 2024 á skötu - Fiskistofa