Niðurstaða tilboðsmarkaðar í október
31. október 2022
Fiskistofa hefur lokið úrvinnslu á tilboðum sem bárust í aflamarksskipti í október.
Fiskistofa hefur klárað að vinna úr tilboðum sem bárust í aflamarksskipti í október. Alls bárust 307 tilboð, þar af voru 10 afturkölluð í samræmi við 4 .gr. reglugerðar nr. 972/2022 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2022/2023. Í þetta skiptið var 66 tilboðum tekið.