Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

Mikilvægt að endurnýja umboð í VOR kerfi

12. ágúst 2024

Endurnýja þarf umboð fyrir vor kerfi þar sem eldri umboð hætta að virka 14. ágúst. Búast má við truflunum á kerfinu þann dag vegna uppfærslu.

viti

Vegna breytinga hjá Ísland.is verður núverandi umboðskerfi, sem Vigtar- og ráðstöfunarkerfi (VOR) Fiskistofu notar, uppfært. Breytingin mun eiga sér stað 14. ágúst næstkomandi. Frá þeim degi munu þau umboð sem nú eru í notkun ekki virka lengur og því þarf að veita ný umboð.

Leiðbeiningar um að veita umboð

Ef þið hafið einhverjar spurningar eða þurfið frekari aðstoð, vinsamlegast hafið samband við okkur með því að hringja í Fiskistofu í síma 569 7900 eða senda tölvupóst á fiskistofa@fiskistofa.is.