Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

Fiskistofa tekur þátt í kennslu hjá GRÓ Fisheries Training Programme

17. janúar 2025

Í þessari viku tók Fiskistofa þátt í kennslu í tengslum við Fisheries Training Programme (FTP) hjá GRÓ - Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu á vegum UNESCO.

GRÓ jan 25 - Fiskistofa

Náminu er ætlað að efla færni og þekkingu fólks frá þróunarlöndum í sjálfbærri nýtingu auðlinda hafs og vatna. Háskólinn á Akureyri leiðir kennsluna en starfsmenn Fiskistofu voru með kynningar um fiskveiðistjórnunarkerfi Íslands, framkvæmd og starfsemi Fiskistofu.

GRÓ FTP er hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands sem hefur það að markmiði að stuðla að sjálfbærum fiskveiðum og bættri auðlindastjórnun. Þátttakendur að þessu sinni komu frá Kenýa, Malaví, Úganda og Tanzaníu.

Fiskistofa leggur áherslu á gagnsæi í stjórn fiskveiða og hvernig hægt er að nýta bestu mögulegu aðferðir til að tryggja jafnvægi milli nýtingar og verndar sjávarauðlinda. Með þátttöku sinni í þessu alþjóðlega samstarfi eykur stofnunin tengsl sín við fagfólk um heim allan og leggur sitt af mörkum til að styrkja getu annarra þjóða til sjálfbærrar auðlindastjórnunar.