Prentað þann 24. nóv. 2024
1690/2023
Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um fjármögnunarviðskipti með verðbréf.
1. gr.
Ákvæði eftirtalinna reglugerða, sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn, skulu gilda hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af bókun 1 um altæka aðlögun við EES-samninginn, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:
-
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/360 frá 13. desember 2018 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2365 að því er varðar gjöld sem Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin innheimtir af viðskiptaskrám, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 386/2021 frá 10. desember 2021 um upptöku reglugerðarinnar í IX. viðauka (fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83 frá 16. nóvember 2023, bls. 58-68.
- 2. gr. framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/822 frá 24. mars 2021 um breytingu á framseldum reglugerðum (ESB) nr. 1003/2013 og (ESB) 2019/360 að því er varðar árleg eftirlitsgjöld sem Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin innheimtir af viðskiptaskrám fyrir 2021, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 100/2023 frá 28. apríl 2023 um upptöku reglugerðarinnar í IX. viðauka (fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 92 frá 20. desember 2023, bls. 111-114.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/463 frá 30. janúar 2019 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2365 að því er varðar listann yfir aðila sem njóta undanþágu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 385/2021 frá 10. desember 2021 um upptöku reglugerðarinnar í IX. viðauka (fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18 frá 17. mars 2022, bls.168-169.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 1. og 2. tölul. 1. mgr. 17. gr. laga nr. 41/2023 um fjármögnunarviðskipti með verðbréf.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. desember 2023.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Sigríður Rafnar Pétursdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.