Fara beint í efnið

Prentað þann 23. nóv. 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2023

1657/2021

Reglugerð um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

1. gr.

Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta í hverjum mánuði skv. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar miðast við tryggingahlutfall hins tryggða þannig að þær nemi aldrei hærri fjárhæð en 494.585 kr. á mánuði miðað við óskerta atvinnuleysistryggingu, sbr. 15. eða 19. gr. laganna. Við útreikning á atvinnuleysisbótum fyrir hvern dag skal miða við 21,67 daga í mánuði.

2. gr.

Sá sem telst að fullu tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á rétt til óskertra grunnatvinnuleysisbóta sem skulu nema 313.729 kr. á mánuði. Lágmarksréttur til atvinnuleysistrygginga veitir rétt til ¼ hluta grunnatvinnuleysisbóta.

3. gr.

Frítekjumark skv. 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skal vera 77.223 kr. á mánuði.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 4. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, gildir um fjárhæð atvinnuleysistrygginga sem reiknast fyrir tímabilið frá og með 1. janúar 2022 og síðar og öðlast gildi 1. janúar 2022. Frá sama tíma fellur brott reglugerð nr. 1296/2020, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

Félagsmálaráðuneytinu, 29. desember 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.

Bjarnheiður Gautadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.