Prentað þann 31. jan. 2025
1508/2024
Reglugerð um breytingu á reglugerð um ökuskírteini, nr. 830/2011.
1. gr.
Við 52. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Með reglugerð þessari er innleidd tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/645 frá 18. apríl 2018 um breytingu á tilskipun 2003/59/EB um grunnþjálfun og reglubundna þjálfun ökumanna tiltekinna ökutækja til vöru- eða farþegaflutninga og á tilskipun ráðsins 2006/126/EB um ökuskírteini, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 155/2022 frá 29. apríl 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 38 frá 16. júní 2022, bls. 50-62.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 58. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 2. desember 2024.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.