Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 21. apríl 2025

Breytingareglugerð

1439/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Rússlandi, nr. 893/2024.

1. gr. Breytt heiti reglugerðar.

Heiti reglugerðar nr. 893/2024 verður: Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Rússland.

2. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

  1. Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/2643 frá 8. október 2024 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika, sbr. fylgiskjal 3.
  2. Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/2642 frá 8. október 2024 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika, sbr. fylgiskjal 4.

3. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 20. nóvember 2024.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.