Prentað þann 22. nóv. 2024
1412/2023
Reglugerð um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2024.
1. gr.
Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2024:
frítekjumark kr. | efra tekjumark kr. | ||
a. | Vegna fjármagnstekna skv. 3. mgr. 30. gr. | 98.640 | |
b. | Tekjutrygging vegna atvinnutekna | ||
skv. ákvæði til bráðabirgða | 2.400.000 | ||
c. | Ellilífeyrir skv. 3. mgr. 22. gr. | ||
i. Almennt | 300.000 | 9.185.173 | |
ii. Vegna atvinnutekna | 2.400.000 | ||
d. | Hálfur ellilífeyrir skv. 4. mgr. 22. gr. | ||
i. Almennt | 3.900.000 | 8.342.587 | |
ii. Vegna atvinnutekna | 2.400.000 | ||
g. | Örorkulífeyrir skv. 4. mgr. 30. gr. | 2.575.220 | 10.977.887 |
h. | Örorkustyrkur skv. 1. mgr. 27. gr. | 2.575.220 | 10.587.531 |
i. | Örorkustyrkur skv. 2. mgr. 27. gr. | 2.575.220 | 10.977.887 |
j. | Aldursviðbót (100%) skv. 1. mgr. 29. gr. | 2.575.220 | 10.977.887 |
k. | Tekjutrygging vegna lífeyrissjóðstekna | ||
skv. 5. mgr. 30. gr. | 328.800 | ||
l. | Ráðstöfunarfé skv. 3. mgr. 38. gr. | 1.846.523 |
2. gr.
Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2024:
frítekjumark kr. | efra tekjumark kr. | ||
a. | Endurhæfingarlífeyrir skv. 3. mgr. 7. gr. | 2.575.220 | 10.977.887 |
b. | Heimilisuppbót með ellilífeyri skv. 2. mgr. 8. gr. | ||
i. Almennt | 300.000 | 8.790.454 | |
ii. Vegna atvinnutekna | 2.400.000 | ||
iii. Með hálfum ellilífeyri | 3.900.000 | 8.145.277 | |
iv. Með hálfum ellilífeyri vegna atvinnutekna | 2.400.000 | ||
c. | Heimilisuppbót með örorkulífeyri skv. 3. mgr. 8. gr. | ||
i. Vegna atvinnutekna | 2.400.000 | ||
ii. Vegna lífeyrissjóðstekna | 328.800 | ||
d. | Sérstök uppbót skv. 2. mgr. 9. gr.: | ||
i. Til lífeyrisþega sem fær greidda heimilisuppbót | 421.380 | ||
ii. Til lífeyrisþega sem fær ekki greidda heimilisuppbót | 335.128 |
3. gr.
Tekjumörk bóta samkvæmt reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2024:
efra tekjumark kr. | ||
Frekari uppbætur skv. 11. gr. | 3.762.270 |
4. gr.
Frítekjumark: Með frítekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem ekki hefur áhrif á bætur.
Efra tekjumark: Með efra tekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem veldur því að bætur falla niður.
5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 63. gr., sbr. 62. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2024. Frá sama tíma falla úr gildi reglugerðir nr. 1439/2022, um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2023, og reglugerð nr. 689/2023 um breytingu á reglugerð nr. 1439/2022 um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2023.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 18. desember 2023.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.