Fara beint í efnið

Prentað þann 27. des. 2024

Breytingareglugerð

1347/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 676/2015 um menntun, þjálfun og atvinnuréttindi farmanna.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætast eftirfarandi skilgreiningar í viðeigandi stafrófsröð, svohljóðandi:

Gistiaðildarríki er aðildarríki þar sem farmenn sækjast eftir samþykki eða viðurkenningu á réttindaskírteinum, hæfnisskírteinum eða skriflegum sönnunargögnum.

IGF-kóði er alþjóðlegur öryggiskóði fyrir skip sem nota gas eða annað eldsneyti með lágu blossamarki, eins og skilgreint er í reglu II-1/2.29 í SOLAS 74.

Pólkóði (e. polar code) er alþjóðakóði fyrir skip sem starfrækt eru á heimskautahafsvæðum, eins og skilgreint er í reglu XIV/1.1 í SOLAS 74.

Heimskautahafsvæði (e. polar waters) er norðurheimskautahafsvæði og/eða Suðurskautslandið, eins og skilgreint er í reglum XIV/1.2-XIV/1.4 í SOLAS 74.

Í stað skilgreiningarinnar "Tilskipunin" kemur eftirfarandi:

Tilskipunin: tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/106/EB frá 19. nóvember 2008 um lágmarksþjálfun sjómanna (endurútgáfa), með áorðnum breytingum sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn.

2. gr.

12. tölul. 6. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Geyma skal frumrit allra skírteina, sem þessi reglugerð kveður á um, um borð í skipinu sem handhafi starfar á, á pappírsformi eða stafrænu formi. Óháð formi skírteinis skal unnt að sannreyna hvort þau séu ósvikin eða gild samkvæmt málsmeðferðinni sem mælt er fyrir um í b-lið 14. tölul. 6. gr. þessarar reglugerðar.

3. gr.

Á eftir 1. tölul. 9. gr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

Hver sá skipstjóri og yfirmaður, sem er handhafi skírteinis til starfa á skipum sem sigla á heimskautahafsvæðum, skal sýna fram á það, eigi sjaldnar en á fimm ára fresti, að hann búi enn yfir fullnægjandi starfshæfni samkvæmt ákvæði A-I/11 í STCW-kóðanum.

4. gr.

Á eftir 9. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 9. gr. a., svohljóðandi:

Gagnkvæm viðurkenning á skírteinum farmanna sem aðildarríkin gefa út.

  1. Samgöngustofa skal taka á móti hæfnisskírteinum og skriflegum sönnunargögnum, sem annað EES-ríki gefur út eða sem gefin eru út með samþykki þess, á pappírsformi eða stafrænu formi, í þeim tilgangi að gera farmönnum kleift að starfa um borð í skipum sem sigla undir íslenskum fána.
  2. Samgöngustofa skal viðurkenna réttindaskírteini eða hæfnisskírteini, sem annað EES-ríki gefur út, til handa skipstjórum og yfirmönnum, í samræmi við tilskipunina, með því að árita þessi skírteini til að staðfesta viðurkenningu þeirra. Áritunin, sem staðfestir viðurkenninguna, skal takmarkast við stöður, starfssvið og réttinda- eða hæfnisstig sem þar er lýst. Áritunin skal aðeins gefin út ef allar kröfur STCW-samþykktarinnar hafa verið uppfylltar í samræmi við 7. mgr. reglu I/2 í STCW-samþykktinni. Eyðublaðið fyrir áritunina skal vera það sem er sett fram í 3. mgr. þáttar A-I/2 í STCW-kóðanum.
  3. Samgöngustofa skal samþykkja heilbrigðisvottorð, sem annað EES-ríki gefur út eða sem gefin eru út með samþykki þess, í þeim tilgangi að gera farmönnum kleift að starfa um borð í skipum sem sigla undir fána þess.
  4. Samgöngustofa skal sjá til þess að ákvarðanirnar, sem um getur í 1.-3. tölul., séu teknar innan hæfilegs frests.
  5. Samgöngustofa getur sett frekari takmarkanir á stöður, starfssvið og réttinda- eða hæfnisstig í tengslum við strandsiglingar, eins og um getur í 7. gr. tilskipunarinnar og reglugerð þessari eða önnur skírteini sem eru gefin út samkvæmt reglu VII/1 í I. viðauka, sbr. þó 2. tölul. þessarar greinar.
  6. Samgöngustofu er heimilt, ef nauðsyn krefur, að leyfa farmanni að starfa, að hámarki þrjá mánuði, um borð í skipi sem siglir undir íslenskum fána, enda hafi farmaðurinn viðeigandi gilt skírteini, útgefið og áritað í öðru EES-ríki jafnvel þó annað gistiaðildarríki hafi ekki enn áritað skírteinið, sbr. þó 2. tölul. Skriflegt sönnunargagn um að lögbærum yfirvöldum hafi verið send umsókn um áritun skal vera aðgengilegt.
  7. Samgöngustofa skal sjá til þess að farmenn, sem leggja fram skírteini til viðurkenningar á störfum á stjórnunarsviði, hafi fullnægjandi þekkingu á íslenskri siglingalöggjöf er lýtur að þeim störfum sem þeim er heimilt að gegna.

5. gr.

25. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Reglugerð þessi er til innleiðingar á eftirfarandi tilskipunum (ESB) með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/106/EB frá 19. nóvember 2008 um lágmarksþjálfun sjómanna (endurútgáfa), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2009 frá 29. maí 2009, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 32 frá 17. júní 2010, bls. 242-270.
  2. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2012/35/ESB frá 21. nóvember 2012 um breytingu á tilskipun 2008/106/EB um lágmarksþjálfun sjómanna, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2015 frá 20. mars 2015, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 23. apríl 2015, bls. 64-91.
  3. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1159 frá 20. júní 2019 um breytingu á tilskipun 2008/106/EB um lágmarksþjálfun sjómanna og um niðurfellingu á tilskipun 2005/45/EB um gagnkvæma viðurkenningu á skírteinum sjómanna sem aðildarríkin gefa út, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2021 frá 11. júní 2021, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49 frá 22. júlí 2021, bls. 152-163.

6. gr.

Í stað reglu V/2 í V. kafla "Sérstakar kröfur um þjálfun sem gerðar eru til farmanna sem starfa á tilteknum gerðum skipa" í I. viðauka reglugerðarinnar kemur ný regla V/2, svohljóðandi:

Regla V/2

Lögboðnar lágmarkskröfur vegna þjálfunar og menntunar og hæfi skipstjóra,
yfirmanna, undirmanna og annarra starfsmanna á farþegaskipum.

  1. Þessi regla gildir um skipstjóra, yfirmenn, undirmenn og aðra starfsmenn um borð í farþegaskipum í millilandasiglingum. Samgöngustofu er heimilt að víkja frá ákvæðum þessarar reglu gagnvart þeim sem starfa á farþegaskipum í innanlandssiglingum.
  2. Áður en þeim eru falin skyldustörf um borð skulu allir starfsmenn um borð í farþegaskipi, uppfylla kröfur 1. mgr. þáttar A-VI/1 í STCW-kóðanum.
  3. Skipstjórar, yfirmenn, undirmenn og aðrir starfsmenn um borð í farþegaskipum skulu ljúka þeirri þjálfun og kynningu, sem er krafist skv. 5.-9. mgr. hér á eftir, í samræmi við stöðu sína, skyldustörf og ábyrgð.
  4. Skipstjórar, yfirmenn, undirmenn og aðrir starfsmenn, sem krafist er að hljóti þjálfun í samræmi við 7. og 9. mgr. hér á eftir, skulu afla sér viðeigandi upprifjunarþjálfunar eigi sjaldnar en á fimm ára fresti eða færa sönnur á að þeir hafi tileinkað sér tilskilda hæfni á næstliðnum fimm árum.
  5. Starfsmenn um borð í farþegaskipum skulu ljúka við kynningu varðandi neyðarástand um borð í farþegaskipi, sem er viðeigandi fyrir stöðu þeirra, skyldustörf og ábyrgð, eins og tilgreint er í 1. mgr. þáttar A-V/2 í STCW-kóðanum.
  6. Starfsmenn, sem veita farþegum í farþegarými um borð í farþegaskipum beina þjónustu, skulu ljúka þjálfunarnámskeiði um öryggismál sem er tilgreint í 2. mgr. þáttar A-V/2 í STCW-kóðanum.
  7. Skipstjórar, yfirmenn og undirmenn, sem hafa menntun og hæfi í samræmi við II., III. og VII. kafla þessa viðauka, og aðrir starfsmenn sem hafa með höndum, samkvæmt neyðaráætlun (e. muster list), það verkefni að aðstoða farþega um borð í farþegaskipum í neyðartilvikum skulu ljúka þjálfun í hópstjórnun fólks um borð í farþegaskipi eins og tilgreint er í 3. mgr. þáttar A-V/2 í STCW-kóðanum.
  8. Skipstjórar, yfirvélstjórar, yfirstýrimenn, 2. vélstjórar og allir aðrir starfsmenn sem hafa með höndum, samkvæmt neyðaráætlun, ábyrgðarstörf vegna öryggis farþega í neyðartilvikum um borð í farþegaskipum skulu ljúka viðurkenndri þjálfun í neyðarstjórnun og mannlegri hegðun eins og tilgreint er í 4. mgr. þáttar A-V/2 í STCW-kóðanum.
  9. Skipstjórar, yfirstýrimenn, yfirvélstjórar, 2. vélstjórar og allir aðrir sem hafa með höndum bein ábyrgðarstörf vegna ferða farþega um borð og frá borði, lestunar, losunar eða frágangs á farmi eða lokunar opa á byrðingi ekjufarþegaskips skulu hafa lokið viðurkenndri þjálfun vegna öryggis farþega og farms og heilleika byrðings, eins og tilgreint er í 5. mgr. þáttar A-V/2 í STCW-kóðanum.
  10. Sjómannaskólar, í umboði Samgöngustofu, eða stofnunin sjálf, gefa út viðeigandi skírteini til þeirra sem sannanlega hafa lokið viðeigandi þjálfun, í samræmi við ákvæði 6.-9. mgr. þessarar reglu.

Eftir reglu V/2 í V. kafla "Sérstakar kröfur um þjálfun sem gerðar eru til farmanna sem starfa á tilteknum gerðum skipa" í I. viðauka reglugerðarinnar koma tvær nýjar reglur, V/3 og V/4 svohljóðandi:

Regla V/3

Lögboðnar lágmarkskröfur vegna þjálfunar, menntunar og hæfi skipstjóra,
yfirmanna, undirmanna og annarra starfsmanna á skipum sem falla undir IGF-kóðann.

  1. Þessi regla gildir um skipstjóra, yfirmenn, undirmenn og aðra starfsmenn um borð í skipum sem falla undir IGF-kóðann.
  2. Áður en farmönnum eru falin skyldustörf um borð í skipum, sem falla undir IGF-kóðann, skulu þeir hafa lokið þeirri þjálfun sem er krafist skv. 4.-9. mgr. hér á eftir í samræmi við stöðu sína, skyldustörf og ábyrgð.
  3. Allir farmenn sem starfa um borð í skipum, sem falla undir IGF-kóðann, skulu, áður en þeim eru falin skyldustörf um borð, hljóta viðeigandi kynningu á skipinu og búnaði þess, eins og tilgreint er í d-lið 1. mgr. 14. gr. tilskipunarinnar.
  4. Farmenn, sem bera ábyrgð á tilteknum öryggisstörfum varðandi meðhöndlun, notkun eða viðbúnað vegna eldsneytis um borð í skipum, sem falla undir IGF-kóðann, skulu vera handhafar skírteinis um grunnþjálfun til starfa á skipum sem falla undir IGF-kóðann.
  5. Hver umsækjandi um skírteini vegna grunnþjálfunar til starfa á skipum, sem falla undir IGF-kóðann, skal hafa lokið grunnþjálfun í samræmi við ákvæði í 1. mgr. þáttar A-V/3 í STCW-kóðanum.
  6. Farmenn sem bera ábyrgð á tilteknum öryggisstörfum varðandi meðhöndlun, notkun eða viðbúnað vegna eldsneytis um borð í skipum, sem falla undir IGF-kóðann, sem hafa menntun og hæfi og eru handhafar skírteinis í samræmi við 2. og 5. mgr. í reglu V/1-2 eða 4. og 5. mgr. í reglu V/1-2 um gasflutningaskip, skulu teljast hafa uppfyllt kröfurnar sem tilgreindar eru í 1. mgr. þáttar A-V/3 í STCW-kóðanum fyrir grunnþjálfun til starfa á skipum sem falla undir IGF-kóðann.
  7. Skipstjórar, vélstjórar og allir starfsmenn sem bera beina ábyrgð á meðhöndlun og notkun eldsneytis og eldsneytiskerfa í skipum, sem falla undir IGF-kóðann, skulu vera handhafar skírteinis fyrir framhaldsþjálfun til starfa á skipum sem falla undir IGF-kóðann.
  8. Hver umsækjandi um skírteini fyrir framhaldsþjálfun til starfa á skipum, sem falla undir IGF-kóðann, skal, samhliða því að vera handhafi hæfnisskírteinisins sem lýst er í 4. mgr., hafa lokið:

    8.1 viðurkenndri framhaldsþjálfun til starfa á skipum, sem falla undir IGF-kóðann, og fullnægja hæfniskröfunni sem er tilgreind í 2. mgr. þáttar A-V/3 í STCW-kóðanum og
    8.2 a.m.k. einum mánuði af viðurkenndum siglingatíma, sem felur í sér a.m.k. þrjár eldsneytistökur um borð í skipum sem falla undir IGF-kóðann. Heimilt er að skipta tveimur af þessum þremur eldsneytistökum út fyrir viðurkennda hermiþjálfun í eldsneytistöku sem hluta af þeirri þjálfun sem um getur í lið 8.1 hér að framan.
  9. Skipstjórar, vélstjórar og aðrir starfsmenn sem bera beina ábyrgð á meðhöndlun og notkun eldsneytis um borð í skipum, sem falla undir IGF-kóðann, sem hafa menntun og hæfi og eru handhafar skírteina í samræmi við hæfniskröfurnar, sem tilgreindar eru í 2. mgr. þáttar A-V/1-2 í STCW-kóðanum, til starfa á gasflutningaskipum, skulu teljast hafa uppfyllt kröfurnar sem tilgreindar eru í 2. mgr. þáttar A-V/3 í STCW-kóðanum um framhaldsþjálfun um borð í skipum sem falla undir IGF-kóðann, að því tilskildu að þeir hafi einnig:

    9.1 uppfyllt kröfurnar í 6. mgr.,
    9.2 uppfyllt kröfurnar um eldsneytistöku í lið 8.2 eða hafa þrisvar sinnum tekið þátt í vinnu við farm um borð í gasflutningaskipinu og
    9.3 lokið þriggja mánaða siglingatíma á næstliðnum fimm árum um borð:
    9.3.1 í skipum sem falla undir IGF-kóðann,
    9.3.2 í tankskipum sem flytja eldsneyti, sem falla undir IGF-kóðann, eða
    9.3.3 í skipum sem nota gas eða eldsneyti með lágu blossamarki sem eldsneyti.
  10. Samgöngustofa eða aðilar sem stofnunin felur það skulu gefa út hæfnisskírteini fyrir farmenn, sem hafa menntun og hæfi í samræmi við 4. eða 7. mgr., eins og við á.
  11. Þeir farmenn sem eru handhafar hæfnisskírteinis, í samræmi við 4. eða 7. mgr. hér að framan, skulu afla sér viðeigandi upprifjunarþjálfunar eigi sjaldnar en á fimm ára fresti eða færa sönnur á að þeir hafi tileinkað sér tilskilda hæfni á næstliðnum fimm árum.

Regla V/4

Lögboðnar lágmarkskröfur vegna þjálfunar og menntunar og hæfi skipstjóra
og yfirmanna á þilfari um borð í skipum sem sigla á heimskautahafsvæðum.

  1. Skipstjórar, yfirstýrimenn og yfirmenn, sem bera ábyrgð á siglingavakt um borð í skipum sem sigla á heimskautahafsvæðum, skulu vera handhafar skírteinis fyrir grunnþjálfun um borð í skipum sem sigla á heimskautahafsvæðum, eins og krafist er samkvæmt pólkóðanum.
  2. Hver umsækjandi um skírteini fyrir grunnþjálfun um borð í skipum sem sigla á heimskautahafsvæðum skal hafa lokið viðurkenndri grunnþjálfun um borð í skipum sem sigla á heimskautahafsvæðum og uppfylla hæfniskröfuna sem tilgreind er í 1. mgr. þáttar A-V/4 í STCW-kóðanum.
  3. Skipstjórar og yfirstýrimenn um borð í skipum sem sigla á heimskautahafsvæðum skulu vera handhafar skírteinis fyrir framhaldsþjálfun um borð í skipum sem sigla á heimskautahafsvæðum, eins og krafist er samkvæmt pólkóðanum.
  4. Hver umsækjandi um skírteini fyrir framhaldsþjálfun um borð í skipum sem sigla á heimskautahafsvæðum skal:

    4.1 uppfylla kröfurnar um útgáfu skírteinis fyrir grunnþjálfun um borð í skipum sem sigla á heimskautahafsvæðum,
    4.2 hafa a.m.k. tveggja mánaða viðurkenndan siglingatíma á þilfari, á stjórnunarsviði eða við vaktstöðuskyldu á rekstrarsviði, á heimskautahafsvæðum eða hafa annan sambærilegan, viðurkenndan siglingatíma og
    4.3 hafa lokið viðurkenndri framhaldsþjálfun um borð í skipum sem sigla á heimskautahafsvæðum og uppfylla hæfniskröfuna sem er tilgreind í 2. mgr. þáttar A-V/4 í STCW-kóðanum.
  5. Samgöngustofa eða aðilar sem stofnunin felur það skulu gefa út hæfnisskírteini fyrir farmenn sem hafa menntun og hæfi í samræmi við 2. eða 4. mgr., eins og við á.
  6. Til og með 1. júlí 2020 skulu farmenn, sem hófu að safna viðurkenndum siglingatíma á heimskautahafsvæðum fyrir 1. júlí 2018, geta sýnt fram á að þeir uppfylli kröfurnar skv. 2. mgr. með því að:

    6.1 hafa lokið viðurkenndum siglingatíma um borð í skipi sem siglir á heimskautahafsvæðum eða sambærilegum viðurkenndum siglingatíma á þilfari, á stjórnunarsviði eða rekstrarsviði, í a.m.k. þrjá mánuði samanlagt á næstliðnum fimm árum eða
    6.2 hafa lokið, með fullnægjandi árangri, þjálfunarnámskeiði sem er skipulagt í samræmi við leiðbeiningar Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar um þjálfun um borð í skipum sem sigla á heimskautahafsvæðum.
  7. Til og með 1. júlí 2020 skulu farmenn, sem hófu að safna viðurkenndum siglingatíma á heimskautahafsvæðum fyrir 1. júlí 2018, geta sýnt fram á að þeir uppfylli kröfurnar skv. 4. mgr. með því að:

    7.1 hafa lokið viðurkenndum siglingatíma um borð í skipi sem siglir á heimskautahafsvæðum eða sambærilegum viðurkenndum siglingatíma á þilfari, á stjórnunarsviði eða rekstrarsviði, í a.m.k. þrjá mánuði samanlagt á næstliðnum fimm árum eða
    7.2 hafa lokið, með fullnægjandi árangri, þjálfunarnámskeiði, í samræmi við leiðbeiningar Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar um þjálfun um borð í skipum sem sigla á heimskautahafsvæðum og hafa lokið viðurkenndum siglingatíma um borð í skipi sem siglir á heimskautahafsvæði eða sambærilegum viðurkenndum siglingatíma við störf á þilfari á stjórnunarsviði í a.m.k. tvo mánuði samanlagt á næstliðnum fimm árum.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 17. gr. laga nr. 76/2001, um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Reglugerðin er sett til innleiðingar á ákvæðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1159 um breytingu á tilskipun 2008/106/EB um lágmarksþjálfun sjómanna og um niðurfellingu á tilskipun 2005/45/EB um gagnkvæma viðurkenningu á skírteinum sjómanna sem aðildarríkin gefa út. Tilskipunin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2021, frá 11. júní 2021.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 16. nóvember 2021.

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.