Prentað þann 23. nóv. 2024
1238/2019
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað "128.357 kr." kemur: 132.850 kr.
- Í stað "177.893 kr." kemur: 184.119 kr.
2. gr.
Í stað "77.624 kr." í 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar kemur: 80.341 kr.
3. gr.
Í stað "177.893 kr." í 2. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar kemur: 184.119 kr.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. mgr. 13. gr., 5. mgr. 18. gr., 5. mgr. 19. gr. og 35. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2020 og á við um foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur 1. janúar 2020 eða síðar. Frá sama tíma fellur brott reglugerð nr. 850/2016, um breytingu á reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, með síðari breytingum.
Félagsmálaráðuneytinu, 19. desember 2019.
Ásmundur Einar Daðason.
Bjarnheiður Gautadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.