Fara beint í efnið

Prentað þann 24. nóv. 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 16. des. 2020

1166/2019

Reglugerð um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2019 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

1. gr. Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.

Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Ríkissjóður veitir árlegu fjárframlagi til lífeyrissjóða til þess að ná því markmiði samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.

Í samræmi við VI. kafla laga nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2019 nema 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætlaðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari.

2. gr. Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.

Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:

  1. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í heildarörorkulífeyrisgreiðslum allra lífeyrissjóða á næstliðnu ári.
  2. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorkulífeyris umfram 10% af heildarlífeyrisskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni vegna væntanlegra iðgjalda miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlutdeild sjóðsins skv. 1. málsl.
  3. Meðaltalshlutfall skv. 1. og 2. tölul. myndar hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

3. gr. Úthlutun fjárframlags árið 2019.

Samkvæmt 19. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2019 renna til lífeyrissjóða sem hafa starfsleyfi frá fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2018 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2018 samtals kr. 1.524.091.764.186 og er áætlað fjárframlag ársins 2018 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. samtals kr. 4.953.298.234 og skiptist það milli lífeyrissjóða sem hér segir:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Almenni lífeyrissjóðurinn 23.701.532 0,479%
Birta lífeyrissjóður 181.662.213 3,668%
Eftirlaunasjóður FÍA 10.228.561 0,207%
Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar 891.594 0,018%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L050EsH 4.433.202 0,090%
Festa lífeyrissjóður 713.968.407 14,414%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 155.731.696 3,144%
Gildi lífeyrissjóður 1.853.202.235 37,414%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 40.914.243 0,826%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L140LsA 2.650.015 0,054%
Lífeyrissjóður bankamanna-aldur 18.995.899 0,384%
Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall 16.841.214 0,340%
Lífeyrissjóður bænda 18.525.335 0,374%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L510LsN 396.264 0,008%
Lífeyrissjóður Rangæinga 34.697.854 0,701%
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar 3.814.040 0,077%
Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf. 3.838.806 0,078%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L600LsH 1.263.091 0,026%
Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar 2.724.314 0,055%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar 25.459.953 0,514%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A 289.272.617 5,840%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B 164.003.705 3,311%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A 156.326.092 3,156%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V 58.498.452 1,181%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L700LsV 2.526.182 0,051%
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands 1.981.319 0,040%
Lífsverk lífeyrissjóður 12.259.413 0,248%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 366.445.003 7,398%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 102.805.705 2,076%
Stapi lífeyrissjóður 612.945.890 12,375%
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 72.268.621 1,459%

Samtals


4.953.273.467


100,000%

Við greiðslu fjárframlags ársins 2020, í október 2020, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2019 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2018.

4. gr. Leiðrétting fjárframlags ársins 2018.

Endurskoðaður gjaldstofn tryggingagjalds vegna ársins 2017 er kr. 1.396.436.720.512. Mismunur áætlaðs gjaldstofns tryggingagjalds ársins 2017 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1166/2018, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2018 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða, og endurskoðaðs gjaldstofns tryggingagjalds vegna ársins 2017 er kr. 4.670.099.298 til hækkunar. Fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2018 nam 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. lög nr. 177/2006, um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald. Leiðrétting fjárframlags ársins 2018, frá því sem það var ákvarðað með reglugerð nr. 1166/2018, nemur því samtals kr. 15.177.823 til hækkunar. Áætlað fjárframlag ársins 2019 eins og það er ákvarðað skv. 3. gr. hækkar um þær fjárhæðir sem tilgreindar eru í eftirfarandi töflu:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Almenni lífeyrissjóðurinn 177.656 1,171%
Birta lífeyrissjóður 559.455 3,686%
Eftirlaunasjóður FÍA 30.963 0,204%
Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar 6.754 0,045%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L050EsH 16.468 0,109%
Eftirlaunasj. starfsm. Útvegsbanka Íslands 2.049 0,014%
Festa lífeyrissjóður 1.750.686 11,535%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 664.485 4,378%
Gildi lífeyrissjóður 6.126.225 40,363%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 119.146 0,785%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L140LsA 8.348 0,055%
Lífeyrissjóður bankamanna-aldur 53.426 0,352%
Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall 63.595 0,419%
Lífeyrissjóður bænda 57.296 0,378%
Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga 94.937 0,626%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L510LsN 1.241 0,008%
Lífeyrissjóður Rangæinga 124.382 0,820%
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar 11.687 0,077%
Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf. 16.544 0,109%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L600LsH 4.174 0,028%
Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar 8.651 0,057%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar 78.090 0,515%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A 816.946 5,383%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B 438.867 2,892%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A 321.998 2,122%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V 160.354 1,057%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L700LsV 9.486 0,063%
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands 6.147 0,041%
Lífsverk lífeyrissjóður 32.101 0,212%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 1.108.740 7,305%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 331.256 2,183%
Stapi lífeyrissjóður 1.753.570 11,554%
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 222.127 1,464%

Samtals


15.177.823


100,000%

5. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi eldri reglugerð nr. 1166/2018 sama efnis.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 4. desember 2019.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Anna V. Ólafsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.