Prentað þann 22. nóv. 2024
1165/2023
Reglugerð um desemberuppbætur á grunnatvinnuleysisbætur.
1. gr.
Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur á grunnatvinnuleysisbætur í desember 2023.
2. gr.
Þau sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2023 og verið skráð án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2023 eiga rétt á desemberuppbót að fjárhæð kr. 99.389 enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma.
Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.
3. gr.
Þau sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2023 og verið skráð án atvinnu hjá Vinnumálastofnun samtals í tíu mánuði eða lengur á árinu 2023 en tryggð hlutfallslega samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma eiga rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir.
Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.
4. gr.
Þau sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2023 en verið skráð án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2023 eiga rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við þann tíma sem viðkomandi hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma, sbr. þó 4. mgr.
Þau sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2023 en verið skráð án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2023 ásamt því að hafa verið tryggð hlutfallslega samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma eiga rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir og þann tíma sem viðkomandi hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun á árinu 2023, sbr. þó 4. mgr.
Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. eða 2. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.
Þrátt fyrir 1.-3. mgr. skal desemberuppbót aldrei nema lægri fjárhæð en kr. 24.847.
5. gr.
Þau sem eiga rétt á desemberuppbót samkvæmt reglugerð þessari og hafa framfærsluskyldu gagnvart barni eða börnum yngri en 18 ára eiga rétt á 6% af óskertri desemberuppbót, sbr. 1. mgr. 2. gr., með hverju barni.
6. gr.
Vinnumálastofnun skal greiða út desemberuppbætur samkvæmt reglugerð þessari eigi síðar en 15. desember 2023.
7. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, öðlast þegar gildi.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 25. október 2023.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Bjarnheiður Gautadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.