Fara beint í efnið

Prentað þann 22. nóv. 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 10. nóv. 2022

1001/2013

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1235/2011, frá 29. nóvember 2011, um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1222/2009 að því er varðar flokkun á veggripi hjólbarða á blautum vegi, mælingu á snúningsmótstöðu og sannprófunaraðferðina.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 43 í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2013, frá 14. júní 2013, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1235/2011 frá 29. nóvember 2011 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1222/2009 að því er varðar flokkun á veggripi hjólbarða á blautum vegi, mælingu á snúningsmótstöðu og sannprófunaraðferðina.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1235/2011 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56/2013, 10. október 2013, bls. 1207.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o.fl., öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. október 2013.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Ingvi Már Pálsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.