Prentað þann 24. nóv. 2024
980/2021
Reglugerð um (17.) breytingu á reglugerð nr. 726/2020, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2020/2021.
1. gr.
Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðist svo:
Heimilt er að flytja óveitt aflamark í hörpudiski (Breiðafjarðarskel) frá fiskveiðiárinu 2020/2021 yfir á fiskveiðiárið 2021/2022.
Heimilt er að flytja allt að 25% af aflamarki í ufsa frá fiskveiðiárinu 2020/2021 yfir á fiskveiðiárið 2021/2022.
Heimilt er að flytja allt að 25% af aflamarki í djúpkarfa frá fiskveiðiárinu 2020/2021 yfir á fiskveiðiárið 2021/2022.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. ágúst 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.