Prentað þann 22. nóv. 2024
917/2020
Reglugerð um nám og námskeið sem eru viðurkennd sem vinnumarkaðsúrræði.
1. gr.
Eftirfarandi nám og námskeið teljast til vinnumarkaðsúrræða skv. 12. gr. laga nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum:
- Nám innan framhaldsfræðslu á grundvelli námskrár sem er vottuð, sbr. lög um framhaldsfræðslu.
- Starfstengt nám sem fram fer á vegum fræðslustofnana atvinnulífsins.
- Annað nám og önnur námskeið en þau sem falla undir a- eða b-lið og fram fara á vegum símenntunarmiðstöðva.
- Námskeið/nám sem ekki verður metið til eininga og fram fer á vegum endurmenntunarstofnana á háskólastigi.
- Námskeið sem fram fer á vegum endurhæfingarmiðstöðva.
- Annað nám og önnur námskeið en nám/námskeið sem fellur undir a-e-lið sem líklegt er að styrki atvinnuleitendur á vinnumarkaði að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar.
Nám sem er lánshæft samkvæmt reglum Menntasjóðs námsmanna, hvort sem það fer fram í dag- eða kvöldskóla, sem og fjarnám telst þó ekki vinnumarkaðsúrræði skv. d-lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, að fenginni umsögn stjórnar Vinnumálastofnunar, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1223/2015, um nám og námskeið sem eru viðurkennd sem vinnumarkaðsúrræði.
Félagsmálaráðuneytinu, 17. september 2020.
Ásmundur Einar Daðason.
Bjarnheiður Gautadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.