Prentað þann 26. des. 2024
891/2020
Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 726/2020, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2020/2021.
1. gr.
1. töluliður töflunnar í 3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Tegund/Svæði | Tonn | Skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) | Til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar | Veiðitímabil |
1. Hörpudiskur | ||||
Breiðafjörður | 93 | 5 | 88 |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. september 2020.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Arnór Snæbjörnsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.