Prentað þann 22. nóv. 2024
855/2012
Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1222/2009 um merkingu hjólbarða að því er varðar eldsneytisnýtingu og aðrar nauðsynlegar kennistærðir.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB), sem vísað er til í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 17/2012 frá 10. febrúar 2012 um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af framangreindum viðaukum samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1222/2009 frá 25. nóvember 2009 um merkingu hjólbarða að því er varðar eldsneytisnýtingu og aðrar nauðsynlegar kennistærðir.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í 43. tölul. IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 221/2012 frá 7. desember 2012, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 228/2011 frá 7. mars 2011 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1222/2009 að því er varðar prófunaraðferð fyrir veggrip hjólbarða í flokki C1 á blautum vegi.
2. gr.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1222/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19, 29. mars 2012, bls. 481.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 17/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, 21. júní 2012, bls. 28.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 228/2011 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20/2013, 28. mars 2013, bls 887. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 221/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 18/2013, 21. mars 2013, bls. 27.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr., sbr. 2. gr., laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o.fl., með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.