Prentað þann 5. des. 2024
834/2004
Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um lyfjamál (IV).
1. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 494/2003 frá 18. mars 2003 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 297/95 um gjöld sem greiða ber til Lyfjamálastofnunar Evrópu, sem bætist sem undirliður við lið 15h (reglugerð ráðsins (EB) nr. 297/95) í XIII. kafla II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2003 frá 26. september 2003 skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.
2. gr.
Reglugerðin og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2003, sbr. 1. gr., sem birt hefur verið í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 64, 18. desember 2003, bls. 14, eru birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 47. gr. lyfjalaga nr. 93/1994, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 5. október 2004.
Jón Kristjánsson.
Davíð Á. Gunnarsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.