Prentað þann 24. nóv. 2024
809/2012
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 115, 13. febrúar 2006, um þorskfisknet.
1. gr.
2. mgr. 2. gr. fellur brott.
2. gr.
4. gr. breytist þannig:
- Í stað orðanna "Allir netadrekar" í 1. mgr. komi: Allar niðurstöður.
- Í stað orðsins "netadrekana" í 1. mgr. komi: niðurstöðurnar.
- Í stað orðsins "netadrekar" í 4. mgr. komi: niðurstöður.
3. gr.
Á eftir 7. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein er verður 7. gr. a, svohljóðandi:
Óheimilt er að stunda veiðar með þorskfisknetum og grásleppunetum á sama tíma.
Séu stundaðar veiðar á skötusel samtímis veiðum með þorskfisknetum vísast til reglugerðar um veiðar á skötusel í net.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 5. nóvember 2012 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. október 2012.
F. h. r.
Jóhann Guðmundsson.
Arnór Snæbjörnsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.