Prentað þann 22. nóv. 2024
788/2017
Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 896/2012 um hvaða flugrekendur heyra undir umsjón Íslands í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
1. gr.
Við 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr stafliður, h-liður, sem orðast svo:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/294 frá 20. febrúar 2017 um breytingu á reglugerð nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem getið er í viðauka I við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB frá 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint, sem vísað er til í tölulið 21as, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 147/2017 frá 7. júlí 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48/2017 frá 3. ágúst 2017 - 2017/EES/48/37, bls. 610 - 802.
2. gr. Innleiðing.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2017/294 frá 20. febrúar 2017 um breytingu á reglugerð nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem getið er í viðauka I við tilskipun 2003/87/EB sem vísað er til í tölulið 21as, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 147/2017 frá 7. júlí 2017.
3. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 4. mgr. 16. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 22. ágúst 2017.
Björt Ólafsdóttir.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.