Fara beint í efnið

Prentað þann 23. nóv. 2024

Breytingareglugerð

785/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 918/2020, um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og um greiðslu styrkja úr Atvinnuleysistryggingasjóði.

1. gr.

Ákvæði til bráðabirgða IV í reglugerðinni orðast svo:

Vinnumálastofnun er heimilt að gera samning við fyrirtæki eða stofnun um ráðningu atvinnuleitanda, sem fullnýtt hefur rétt sinn til atvinnuleysisbóta innan atvinnuleysistryggingakerfisins á tilteknu tímabili, sbr. b-lið 4. mgr., enda telst ráðningin vinnumarkaðsúrræði skv. b-lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum, að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun er jafnframt heimilt að gera slíkan samning við frjáls félagasamtök vegna tímabundinna átaksverkefna, svo sem við landvernd, landhreinsun, gróðursetningu, íþrótta- og afþreyingarstarf fyrir börn o.s.frv. Með frjálsum félagasamtökum er í þessu sambandi átt við félagasamtök sem starfa að góðgerðar- og/eða mannúðarmálum í þágu almannahagsmuna og eru ekki rekin í hagnaðarskyni auk þess að vera undanþegin skattskyldu skv. 4. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Vinnumálastofnun, hlutaðeigandi fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök og viðkomandi atvinnuleitandi skulu undirrita samninginn. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að gegna því starfi sem hann er ráðinn til að gegna á grundvelli samningsins. Jafnframt skuldbindur Vinnumálastofnun sig með undirritun sinni til að greiða styrk úr Atvinnuleysistryggingasjóði skv. 2. mgr. til hlutaðeigandi fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka. Þá skuldbindur hlutaðeigandi fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök sig með undirritun sinni til að greiða viðkomandi atvinnuleitanda laun samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamnings. Markmiðið er að atvinnuleitendur sem hafa fullnýtt rétt sinn til atvinnuleysisbóta innan atvinnuleysistryggingakerfisins á tilteknu tímabili, sbr. b-lið 4. mgr., fái tækifæri til að auka hæfni sína til þátttöku að nýju á vinnumarkaði þannig að komið verði í veg fyrir að langvarandi atvinnuleysi hjá þessum hópi leiði til óvinnufærni til frambúðar.

Vinnumálastofnun er heimilt að greiða styrk til handa hlutaðeigandi fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum, á grundvelli samnings skv. 1. mgr., sem nemur launum viðkomandi atvinnuleitanda en þó ekki hærri fjárhæð en sem nemur hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta á mánuði samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar í hlutfalli við starfshlutfall viðkomandi atvinnuleitanda auk 11,5% mótframlags af styrkfjárhæð í lífeyrissjóð í allt að sex mánuði, sbr. þó 2. málsl. 1. mgr. 62. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar. Auk þess er Vinnumálastofnun heimilt að greiða hlutaðeigandi félagasamtökum sérstakan styrk sem nemur allt að 25% af fjárhæð þess styrks sem greiddur er á grundvelli samnings skv. 1. mgr. vegna kostnaðar hlutaðeigandi félagasamtaka í tengslum við þau tímabundnu átaksverkefni sem um ræðir.

Óheimilt er að framlengja gildistíma samnings skv. 1. mgr. vegna sama atvinnuleitanda nema atvinnuleitandinn hafi skerta starfsgetu og nauðsynlegt sé að veita honum lengri tíma til þjálfunar að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og er þá einungis heimilt að framlengja gildistíma samnings einu sinni í aðra sex mánuði að hámarki.

Skilyrði fyrir greiðslu styrks úr Atvinnuleysistryggingasjóði á grundvelli samnings skv. 1. mgr. eru meðal annars:

  1. að ráðning viðkomandi atvinnuleitanda feli í sér aukningu á starfsmannafjölda hlutaðeigandi fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka,
  2. að viðkomandi atvinnuleitandi hafi fullnýtt rétt sinn til atvinnuleysisbóta á tímabilinu 1. október 2020 til og með 31. desember 2021,
  3. að hlutaðeigandi fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök hafi a.m.k. einn starfsmann á launaskrá áður en til ráðningar viðkomandi atvinnuleitanda kemur,
  4. að hlutaðeigandi fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök sé í skilum hvað varðar launatengd gjöld og opinber gjöld, svo sem iðgjöld og mótframlag í lífeyrissjóð, stéttarfélagsgjöld og tryggingagjald,
  5. að hjá hlutaðeigandi fyrirtæki starfi 70 starfsmenn eða færri óháð stöðugildi og að meðtöldum þeim atvinnuleitendum sem ráðnir eru til starfa á grundvelli samnings skv. 1. mgr.

Samningur skv. 1. mgr. fellur úr gildi komi til slita á ráðningarsambandi milli hlutaðeigandi fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka og viðkomandi atvinnuleitanda á gildistíma samningsins. Fellur þá jafnframt niður heimild Vinnumálastofnunar til greiðslu styrks úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt ákvæði þessu. Hið sama gildir séu skilyrði fyrir greiðslu styrks úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt ákvæði þessu ekki lengur uppfyllt að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar eða ef staðfesting á launagreiðslu til viðkomandi atvinnuleitanda hefur ekki fylgt með reikningi hlutaðeigandi fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka til Vinnumálastofnunar vegna greiðslu styrks á grundvelli samnings skv. 1. mgr.

Hlutaðeigandi fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök skal tilnefna sérstakan tengilið sem skal vera í samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings skv. 1. mgr. eftir því sem þörf krefur.

Sá tími sem ráðning atvinnuleitanda varir á grundvelli samnings skv. 1. mgr. telst ekki til ávinnslutímabils atvinnuleitandands skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, sbr. einnig e-lið 1. mgr. 13. gr. og e-lið 1. mgr. 18. gr. laganna.

Ákvæði þetta gildir frá gildistöku reglugerðar þessarar til og með 31. desember 2021.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða V í reglugerðinni:

  1. Í stað orðanna "fjóra mánuði á tímabilinu 1. júní 2021 til og með 30. september 2021" í 2. mgr. kemur: fimm mánuði á tímabilinu 1. júní 2021 til og með 31. október 2021.
  2. Í stað orðsins "fjóra" í 3. mgr. kemur: fimm.
  3. Í stað dagsetningarinnar "30. september 2021" í 7. mgr. kemur: 31. október 2021.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 62. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, og 5. mgr. 12. gr. laga nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Vinnumálastofnunar, öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 30. júní 2021.

Ásmundur Einar Daðason.

Bjarnheiður Gautadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.