Prentað þann 24. nóv. 2024
771/2020
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2104 að því er varða alþjóðlega reikningsskilastaðla, IAS-staðla 1 og 8.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 86/2020, frá 12. júní 2020, um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn (Félagaréttur), skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2104 frá 29. nóvember 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlega reikningsskilastaðla, IAS-staðla 1 og 8.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2019/2104 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 50/2020, 23. júlí 2020, bls. 606.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. ágúst 2020.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Kristján Skarphéðinsson.
Harpa Theodórsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.