Prentað þann 24. nóv. 2024
646/2024
Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1042 að því er varðar tækniforskriftir og verklagsreglur fyrir samtengingarkerfi skráa.
1. gr.
Eftirtalin framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 1a í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 161/2022, frá 29. apríl 2022, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1042 frá 18. júní 2021 um reglur um beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1132 að því er varðar tækniforskriftir og verklagsreglur fyrir samtengingarkerfi skráa og niðurfellingu framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2244.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1042 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 76/2022, 17. nóvember 2022, bls. 252-296.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett er með stoð í 2. mgr. 9. gr. b laga nr. 17/2003 um fyrirtækjaskrá og öðlast þegar gildi.
Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, 28. maí 2024.
F. h. r.
Ingvi Már Pálsson.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.