Prentað þann 23. nóv. 2024
620/2022
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1647/2021, um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2022.
1. gr.
Í stað "104.929 kr." í 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 106.765 kr.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr. og 27. tölul. ákvæðis til bráðabirgða við lög nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. einnig lög nr. 27/2022, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 27. maí 2022.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.