Prentað þann 22. nóv. 2024
607/2016
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 385/2013 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1062/2010 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/EB að því er varðar orkumerkingar sjónvarpa.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 4c, 4e, 4i, 4j, 4k, 4l, 4m, 4n, 4s, 4t, 11c, 11e, 11i, 11j, 11k, 11l, 11m, 11n, 11s og 11t í kafla IV í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 24/2016, frá 5. febrúar 2016, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 518/2014 frá 5. mars 2014 um breytingu á framseldum reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1059/2010, (ESB) nr. 1060/2010, (ESB) nr. 1061/2010, (ESB) nr. 1062/2010, (ESB) nr. 626/2011, (ESB) nr. 392/2012, (ESB) nr. 874/2012, (ESB) nr. 665/2013, (ESB) nr. 811/2013 og (ESB) nr. 812/2013 að því er varðar merkingu orkutengdra vara á Netinu.
2. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (ESB) nr. 518/2014 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18/2016, 31. mars 2016, bls. 253.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o.fl., með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. júní 2016.
Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Erla Sigríður Gestsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.