Prentað þann 27. des. 2024
583/2022
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 926/2015 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði.
1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætast nýir stafliðir, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1383 frá 8. júlí 2019 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækja sem annast stjórnun á áframhaldandi lofthæfi og tilslakanir fyrir loftför í almannaflugi að því er varðar viðhald og stjórnun á áframhaldandi lofthæfi.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/270 frá 25. febrúar 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar umbreytingarráðstafanir fyrir fyrirtæki sem annast áframhaldandi lofthæfi fyrir almannaflug ásamt stjórnun á áframhaldandi lofthæfi og um leiðréttingu á þeirri reglugerð.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1159 frá 5. ágúst 2020 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1321/2014 og (ESB) 2015/640 að því er varðar innleiðingu nýrra viðbótarlofthæfikrafna.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/700 frá 26. mars 2021 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar viðhaldsgögn og ísetningu tiltekinna loftfarsíhluta meðan á viðhaldi stendur.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerðir (ESB) 2019/1383, (ESB) 2020/270, (ESB) 2020/1159 og (ESB) 2021/700, sem nefndar eru í 1. gr., eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 5. maí 2022.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.