Prentað þann 24. nóv. 2024
552/2023
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1491 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 17.
1. gr.
Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2023, frá 28. apríl 2023, um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn (Félagaréttur), skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1491 frá 8. september 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 17.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1491 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 40/2023, 25. maí 2023, bls. 287-290.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.
Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, 5. júní 2023.
F. h. r.
Ingvi Már Pálsson.
Harpa Theodórsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.