Prentað þann 26. des. 2024
445/2021
Reglugerð um (13.) breytingu á reglugerð nr. 726/2020, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2020/2021.
1. gr.
2. töluliður töflunnar í 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
2. Ýsa | 52.419 | 2.778 | 49.641 |
2. gr.
Við töflu í 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar bætist ein lína svohljóðandi:
23. Rækja við Snæfellsnes | 393 | 21 | 372 |
3. gr.
Á eftir orðunum "litla karfa" í 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: hlýra.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. apríl 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.