Prentað þann 22. nóv. 2024
435/2011
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 774/2010.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til á eftir 39. lið í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 7/2011, frá 1. apríl 2011, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 774/2010 frá 2. september 2010 um setningu viðmiðunarreglna er varða jöfnunargreiðslur milli flutningskerfisstjóra og sameiginlega nálgun við reglusetningu um gjaldtöku fyrir flutning.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 774/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22/2011, 14. apríl 2011, bls. 1.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 7/2011 er birt í viðauka við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 45. gr. raforkulaga, nr. 65/2003, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Iðnaðarráðuneytinu, 28. apríl 2011.
F. h. r.
Kristján Skarphéðinsson.
Þórður Reynisson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.