Prentað þann 27. des. 2024
407/2020
Reglugerð um bann við hrognkelsaveiðum árið 2020.
1. gr. Bann við veiðum og niðurfelling grásleppuveiðileyfa.
Grásleppuveiðar skulu bannaðar í fiskveiðilandhelgi Íslands frá og með miðnætti aðfaranótt sunnudagsins 3. maí 2020. Fiskistofa skal fella úr gildi öll útgefin leyfi til grásleppuveiða frá og með þeim tíma, sbr. 2. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 165/2020, um hrognkelsaveiðar árið 2020.
2. gr. Heimild til að veiða á Breiðafirði, svæði 2.
Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. er heimilt að gefa út leyfi til grásleppuveiða í allt að 15 daga til þeirra sem stunduðu grásleppuveiðar árin 2018 eða 2019 á Breiðafirði, svæði 2, samkvæmt leyfum sem tóku gildi 20. maí þau ár eða síðar.
Bátur sem fær leyfi til grásleppuveiða á innra svæði Breiðafjarðar, skv. 1. mgr. getur landað að hámarki 15 tonnum af grásleppu á grásleppuvertíð 2020.
3. gr. Refsingar og viðurlög.
Brot gegn reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa varða refsingu samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.
4. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, og lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin tekur þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. apríl 2020.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jóhann Guðmundsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.