Prentað þann 28. des. 2024
357/2021
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 288/2021 um hrognkelsaveiðar árið 2021.
1. gr.
Í stað tölunnar "25" í 1. málsl. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 40.
2. gr.
VI. töluliður 11. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Innan svæðis út af Ströndum (Selsker-Óðinsboði), sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 66°28,00´N - 22°28,00´V
- 66°23,00´N - 21°42,00´V
- 66°10,50´N - 21°28,00´V
- 65°58,30´N - 21°40,00´V
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1997, um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin tekur þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. mars 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.