Fara beint í efnið

Prentað þann 23. nóv. 2024

Breytingareglugerð

319/2018

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 834/2017 um vöktun, vottun og skýrslugjöf vegna losunar koldíoxíðs frá sjóflutningum.

1. gr.

Ein ný gerð bætist við 2. gr. reglugerðarinnar, svohljóðandi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2071 frá 22. september 2016 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/757 að því er varðar aðferðir við vöktun á losun koltvísýrings og reglur um vöktun annarra viðeigandi upplýsinga, sem vísað er til í tölulið 21 aw, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 30/2018, frá 9. febrúar 2018 með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, XIII. og XX. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14, frá 8. mars 2018, bls. 382-385.

2. gr. Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirtalinni EES-gerð:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2071 frá 22. september 2016 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/757 að því er varðar aðferðir við vöktun á losun koltvísýrings og reglur um vöktun annarra viðeigandi upplýsinga, sem vísað er til í tölulið 21 aw, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 30/2018, frá 9. febrúar 2018.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 21. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 12. mars 2018.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.