Prentað þann 24. nóv. 2024
288/2021
Reglugerð um hrognkelsaveiðar árið 2021.
I. KAFLI Leyfi til veiða.
1. gr. Almennt.
Allar veiðar á grásleppu í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar nema að fengnu sérstöku leyfi Fiskistofu. Bátum með leyfi til veiða á grásleppu er heimilt að veiða með hrognkelsanetum. Bátum sem hafa leyfi til veiða með krókaaflamarki er óheimilt að stunda veiðar með rauðmaganetum, nema að fengnu sérstöku leyfi Fiskistofu.
2. gr. Grásleppuveiðileyfi.
Fiskistofu er heimilt að veita þeim bátum leyfi til grásleppuveiða, sem rétt áttu til slíkra leyfa á vertíðinni 1997, sbr. reglugerð nr. 58/1996, eða leiða rétt sinn frá þeim bátum, enda hafi þeir leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. lög nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.
Umsækjandi um leyfi skal í umsókn greina hvenær hann muni hefja grásleppuveiðar með lagningu neta ásamt því að tilgreina fjölda hrognkelsaneta og teinalengd nets. Hver bátur getur einungis haft eitt grásleppuveiðileyfi á hverri grásleppuvertíð.
3. gr. Veiðisvæði og veiðitímabil.
Grásleppuveiðileyfi hvers báts skal gefið út til 25 samfelldra daga og skal bundið við ákveðið veiðisvæði og veiðitímabil eins og hér greinir:
- Faxaflói, frá línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita 64°04,90 N 022°41,40 V að línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00 N 023°55,30 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 23. mars til og með 30. júní.
- Breiðafjörður, svæði 1 frá línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00 N 023°55,30 V að línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum 65°30,20 N 024°32,10 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 23. mars til og með 30. júní. Breiðafjörður, svæði 2 innan línu sem dregin er úr Krossnesvita vestan Grundarfjarðar 64°58,30 N 023°21,40 V í Lambanes vestan Vatnsfjarðar 65°29,30 N 023°12,60 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 20. maí til og með 12. ágúst.
- Vestfirðir, frá línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum 65°30,20 N 024°32,10 V að línu réttvísandi norður frá Horni 66°27,40 N 022°24,30 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 23. mars til og með 30. júní.
- Húnaflói, frá línu réttvísandi norður frá Horni 66°27,40 N 022°24,30 V að línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20 N 020°05,90 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 23. mars til og með 30. júní.
- Norðurland, frá línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20 N 020°05,90 V að línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi 66°22,70 N 014°31,90 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 23. mars til og með 30. júní.
- Austurland, frá línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi 66°22,70 N 014°31,90 V að línu réttvísandi austur frá Hvítingum 64°23,90 N 014°28,00 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 23. mars til og með 30. júní.
- Suðurland, frá línu réttvísandi austur frá Hvítingum 64°23,90 N 014°28,00 V að línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita 64°04,90 N 022°41,40 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 23. mars til og með 30. júní.
Óheimilt er að stunda veiðar með rauðmaganetum frá 16. júní til 31. desember.
4. gr. Niðurfelling veiðileyfa.
Fiskistofa fylgist með lönduðum grásleppuafla og skal fella úr gildi öll leyfi til veiða á svæðum A og C til G, ef fyrirséð er að veiðar gætu orðið skaðlegar með tilliti til sjálfbærrar nýtingar grásleppustofnsins. Fiskistofa skal miða við að afli á framangreindum svæðum fari ekki yfir 78% af ráðlögðum hámarksafla tímabilsins.
Fiskistofa skal fella úr gildi öll leyfi á svæði B, ef fyrirséð er að veiðar gætu orðið skaðlegar með tilliti til sjálfbærrar nýtingar grásleppustofnsins. Fiskistofa skal miða við að afli á B svæði fari ekki yfir 22% af ráðlögðum hámarksafla tímabilsins fyrir 30. júní.
5. gr. Breyting á bátum.
Sé báti, sem réttur til grásleppuveiða skv. 2. gr., er bundinn við, breytt þannig að hann stækki um meira en 2,5 brúttótonn er óheimilt að gefa út grásleppuveiðileyfi til hans, nema til bátsins hafi verið fluttur réttur til grásleppuveiða af öðrum báti sem er a.m.k. jafnstór í brúttótonnum talið og sú stækkun sem er umfram 2,5 brúttótonn og af breytingunni leiðir.
Fiskistofu er óheimilt að gefa út grásleppuveiðileyfi til báts sem hefur verið stækkaður þannig að hann mælist stærri en 15 brúttótonn.
6. gr. Flutningur á rétti til að öðlast grásleppuveiðileyfi.
Fiskistofu er heimilt að flytja rétt til grásleppuveiða milli báta að uppfylltum eftirtöldum skilyrðum:
- Bátur, sem réttur er fluttur frá, hafi nýtt réttinn í a.m.k. eina vertíð.
- Bátur sem réttur er fluttur til hafi leyfi til veiða í atvinnuskyni.
- Bátur, sem réttur er fluttur til sé að hámarki 2,5 brúttótonnum stærri en sá bátur sem réttur er fluttur frá. Óheimilt er að flytja rétt til grásleppuveiða til báts sem er stærri en 15 brúttótonn.
Með beiðni um flutning fylgi skrifleg staðfesting eigenda báts, sem réttur er fluttur frá.
Við sölu báts, sem hefur rétt til grásleppuveiða, fylgir rétturinn bátnum nema um annað sé samið í kaupsamningi eða afsali. Hafi seljandi báts tekið fram í kaupsamningi eða afsali, að rétturinn fylgi ekki með við söluna, hefur seljandinn heimild til að flytja hann á annan bát, að uppfylltum öðrum skilyrðum þessarar reglugerðar.
Tilkynna skal til Fiskistofu, innan 30 daga, ef réttur til grásleppuveiða fylgir ekki báti við sölu hans. Nýti seljandi ekki heimild 1. mgr. til að flytja réttinn á annan bát, næstu tvær vertíðir frá sölu bátsins, fellur rétturinn niður. Sama gildir ef almennt leyfi til fiskveiða í atvinnuskyni er fellt úr gildi. Ákvæði þessarar greinar taka einnig til þess þegar bátur er tekinn af skipaskrá Samgöngustofu, eftir því sem við á.
7. gr. Aðrar veiðar og meðafli.
Óheimilt er að stunda aðrar veiðar en hrognkelsaveiðar í sömu veiðiferð. Áður en veiðiferð hefst skal útgerð sjá til þess að báturinn hafi þær aflaheimildir sem dugi fyrir ætluðum meðafla í veiðiferðinni.
Telji Fiskistofa að meðafli grásleppuveiðibáts sé að aflasamsetningu frábrugðinn meðafla annarra grásleppuveiðbáta á svipuðum veiðisvæðum skal Fiskistofa setja veiðieftirlitsmann um borð í bátinn til að fylgjast sérstaklega með veiðum hans í einn dag. Skal útgerð grásleppuveiðbátsins tilkynnt um ákvörðun Fiskistofu. Telji Fiskistofa að ástæða sé til að fylgjast áfram með veiðum grásleppuveiðbátsins vegna meðaafla, skal útgerð bátsins bera kostnað af veru veiðieftirlitsmanns Fiskistofu um borð frá og með öðrum degi, sbr. 13. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.
II. KAFLI Tilhögun veiða.
8. gr. Veiðitími.
Óheimilt er að leggja grásleppunet fyrir kl. 08.00 fyrsta dag gildandi leyfis. Skylt er að draga öll grásleppunet úr sjó fyrir lok leyfistímabils, sbr. 3. gr. eða skv. 4. gr. komi til þess að leyfi verði felld úr gildi er hámaksafla er náð.
Óheimilt að hefja veiðar með yfirtöku hrognkelsaneta í sjó. Merking veiðarfæra skal að fullu frágengin í landi áður en veiðar með hrognkelsanetum hefjast.
9. gr. Vitjun neta.
Grásleppunet skulu dregin eigi síðar en þremur sólarhringum eftir að þau eru lögð í sjó. Frá þessu má aðeins víkja ef veður hamlar sjósókn með þeim hætti að ekki reynist unnt að vitja neta enda hafi skipstjóri sent Fiskistofu tilkynningu þar að lútandi á netfangið grasleppa@fiskistofa.is. Týni skip hrognkelsanetum í sjó, ber skipstjóra að slæða þau upp. Takist það ekki skal hann tilkynna það Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu og skýra frá staðsetningu netanna eins nákvæmlega og unnt er.
10. gr. Netalagnir.
Að hámarki er hverjum bát heimilt að hafa samanlagða teinalengd neta til hrognkelsaveiða allt að 7.500 metra á vertíð. Netalengd miðast við teinalengd (efri tein/flottein nets). Hverjum bát er einungis heimilt að nota net sömu teinalengdar á hverri grásleppuvertíð.
Frá 1. apríl til 14. júlí má eigi án leyfis varpeiganda leggja net í sjó nær friðlýstu æðarvarpi en 250 metra frá stórstraumsfjöruborði, sbr. lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
11. gr. Svæði lokuð fyrir veiðum með hrognkelsanetum vegna hættu á meðafla sjávarspendýra.
-
Innan svæðis á Faxaflóa, sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 64°50,00´N - 22°25,75´V
- 64°32,40´N - 21°51,40´V
- 64°26,00´N - 22°00,00´V
- 64°25,00´N - 22°20,00´V
- 64°36,00´N - 22°34,00´V
- 64°50,00´N - 22°32,00´V
-
Innan svæðis á Breiðafirði, sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 65°04,80´N - 22°43,40´V Stykkishólmur
- 65°17,45´N - 22°21,90´V Skarðsstöð
- 65°25,45´N - 22°12,45´V Reykhólar
-
Innan svæðis út af Rauðasandi, sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 65°32,80´N - 24°29,40´V
- 65°28,30´N - 23°56,00´V
- 65°26,50´N - 23°57,60´V
- 65°27,50´N - 24°07,00´V
- 65°29,00´N - 24°16,00´V
- 65°28,00´N - 24°27,00´V
- 65°29,00´N - 24°35,00´V
-
Innan svæðis út af Kollsvík, sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 65°39,20´N - 24°29,34´V
- 65°38,95´N - 24°18,40´V
- 65°34,20´N - 24°22,00´V
- 65°34,55´N - 24°27,14´V
-
Innan svæðis út af Tálknafirði, sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 65°48,75´N - 24°10,60´V
- 65°48,27´N - 24°04,67´V
- 65°45,34´N - 24°06,36´V
- 65°45,75´N - 24°12,50´V
-
Innan svæðis út af Ströndum (Selsker-Óðinsboði), sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 66°28,00´N - 22°28,00´N
- 66°23,00´N - 21°42,00´V
- 66°10,50´N - 21°28,00´V
- 65°58,30´N - 21°40,00´V
-
Innan svæðis út af Ströndum (Reykjarfjörður-Veiðileysufjörður), sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 65°58,00´N - 21°37,70´V
- 65°59,25´N - 21°23,00´V
- 65°56,20´N - 21°19,50´V
- 65°56,00´N - 21°36,80´V
-
Innan svæðis út af Ströndum (út af Kaldbakshorni), sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 65°53,20´N - 21°16,00´V
- 65°51,40´N - 21°14,50´V
- 65°50,20´N - 21°15,00´V
- 65°49,80´N - 21°18,00´V
-
Innan svæðis út af Ströndum (út af Bjarnarfirði), sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 65°46,70´N - 21°24,00´V
- 65°45,50´N - 21°14,00´V
- 65°44,70´N - 21°14,00´V
- 65°44,60´N - 21°21,00´V
-
Innan svæðis innst í Húnaflóa, sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 65°45,50´N - 20°50,00´V
- 65°41,00´N - 20°42,00´V
- 65°21,00´N - 20°51,00´V
- 65°14,00´N - 21°10,00´V
- 65°29,00´N - 21°17,00´V
-
Innan svæðis út af Skagatá sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 66°06,40´N - 20°23,00´V
- 66°08,20´N - 20°10,20´V
- 66°06,85´N - 20°10,00´V
- 66°05,00´N - 20°23,25´V
-
Innan svæðis á Skagafirði (út af Ketubjörgum), sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 66°02,20´N - 19°57,85´V
- 66°02,20´N - 19°54,00´V
- 66°01,10´N - 19°54,00´V
- 66°01,20´N - 19°57,85´V
-
Innan svæðis á Skagafirði (við Drangey), sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 66°02,20´N - 19°43,40´V
- 66°02,20´N - 19°39,00´V
- 65°55,90´N - 19°34,60´V
- 65°55,90´N - 19°42,00´V
-
Innan svæðis á Skagafirði (á Málmeyjarsundi), sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 66°04,00´N - 19°36,80´V
- 66°04,00´N - 19°22,40´V
- 66°02,00´N - 19°26,00´V
- 66°02,00´N - 19°35,50´V
12. gr. Netamöskvi.
Grásleppunet skulu vera með möskva á bilinu 10,5 þumlunga (267 mm) til 11,5 þumlunga (292 mm).
Rauðmaganet skulu vera með möskva á bilinu 7 þumlunga (178 mm) til 8 þumlunga (203 mm) og net 20 möskva eða grynnri.
13. gr. Merking lagna.
Netabaujur skulu vera á báðum endum netatrossu og allar merktar með flaggi, sem komið er fyrir efst á baujustönginni. Á flaggið skal mála umdæmisnúmer eða skipaskrárnúmer þess skips, sem notar netin. Auk þessa skulu allir belgir merktir með umdæmisnúmeri eða skipaskrárnúmeri þess skips, sem notar þá. Merkingar á baujuflöggum og belgjum skulu vera greinilegar og skulu stafir stórir og skýrir. Allar niðurstöður skulu, með varanlegri merkingu, vera greinilega merktar umdæmisnúmeri eða skipaskrárnúmeri þess skips sem þær notar.
Skylt er að númera netatrossur báta frá einum til þess fjölda trossa sem hver bátur á í sjó. Númer netatrossu skal skráð skýrum tölustöfum á baujuflagg á báðum endum trossu.
III. KAFLI Eftirlit, viðurlög o.fl.
14. gr. Veiðieftirlit og stjórnsýsluviðurlög.
Fiskistofa hefur eftirlit með veiðum á grásleppu og rauðmaga og er heimilt að veita áminningar eða svipta skip leyfi til veiða á grásleppu og/eða rauðmaga vegna brots á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa, sbr. 21. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Missi skip leyfi til veiða í atvinnuskyni fellur jafnframt niður leyfi til veiða á grásleppu.
Verði um óeðlilega veiði á botnfisktegundum að ræða þannig að magn þeirra í þorskígildum talið sé ítrekað svipað eða meira en magn grásleppu- og/eða rauðmagaaflans í þorskígildum talið er Fiskistofu heimilt að svipta viðkomandi skip leyfi til grásleppu- og/eða rauðmagaveiða.
15. gr. Refsingar og viðurlög.
Brot gegn reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa varða refsingu samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.
16. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1997, um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin tekur þegar gildi.
Við gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð nr. 165/2020 um hrognkelsaveiðar 2020 og reglugerð nr. 407/2020 um bann við hrognkelsaveiðum árið 2020.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. mars 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.