Prentað þann 19. apríl 2025
256/2025
Reglugerð um að fella úr gildi reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu, nr. 361/2016.
1. gr.
Felld er úr gildi reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu, nr. 361/2016, sem sett var á grundvelli laga um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu, nr. 58/2010, og laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 26. febrúar 2025.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
utanríkisráðherra.
Martin Eyjólfsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.