Prentað þann 23. nóv. 2024
171/2023
Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 606/2021 um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir.
1. gr.
Einn stafliður bætist við 31. gr. reglugerðarinnar, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/388 frá 8. mars 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/2066 um vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda og skýrslugjöf um losunina samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB, sem vísað er til í tölulið 21 apj í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 286/2022, frá 28. október 2022, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af ákvörðun þessari, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 76 frá 17. nóvember 2022, bls. 62-64.
2. gr.
Einn stafliður bætist við 33. gr. reglugerðarinnar svohljóðandi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/455 frá 14. mars 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 748/2009 að því er varðar uppfærslu á skránni yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem tilgreind er í I. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB, 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint, sem vísað er til í tölulið 21as í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegur EES-nefndarinnar nr. 287/2022 frá 28. október 2022, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af ákvörðun þessari, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 76 frá 17. nóvember 2022, bls. 65-201.
3. gr. Innleiðing.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirfarandi gerðum:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/388 frá 8. mars 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/2066 um vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda og skýrslugjöf um losunina samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/455 frá 14. mars 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 748/2009 að því er varðar uppfærslu á skránni yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem tilgreind er í I. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB, 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint.
4. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 6. mgr. 21. gr. b. og 5. mgr. 9. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál, með síðari breytingum.
Reglugerð þessi tekur þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 8. febrúar 2023.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Stefán Guðmundsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.