Prentað þann 22. nóv. 2024
Breytingareglugerð
123/2016
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.
1. gr. Innleiðing.
Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður svohljóðandi:
- Reglugerð (ESB) 2015/1039 frá 30. júní 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar flugprófanir, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 277 frá 30. október 2015. Reglugerðin er birt á bls. 534 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 74 frá 10. desember 2015.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 28. janúar 2016.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Gunnar Örn Indriðason.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.