Prentað þann 24. nóv. 2024
56/2021
Reglugerð um breytingu á reglugerð um skilyrði fyrir tímabundnum lánveitingum Ferðaábyrgðasjóðs vegna COVID-19, nr. 720/2020.
1. gr.
Í stað dagsetningarinnar "1. mars 2021" í 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. desember 2021.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í ákvæði til bráðabirgða I við lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun, nr. 95/2018, sbr. lög nr. 78/2020, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. janúar 2021.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Sigrún Brynja Einarsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.