Endurhæfing - leiðbeiningar fyrir fagfólk
Endurhæfing
Endurhæfingu er ætlað að efla einstakling sem getur ekki sinnt störfum á vinnumarkaði vegna slyss eða sjúkdóms.
Markmiðið er að ná aftur starfshæfni eða auka atvinnuþátttöku.
Endurhæfingarlífeyrir tryggir einstaklingnum framfærslu á meðan á endurhæfingu stendur.
Endurhæfing þarf að vera fullreynd áður en byrjað er að meta örorku.
Skilyrði
Til þess að einstaklingur geti sótt um endurhæfingarlífeyri þarf viðkomandi að:
vera milli 18 og 67 ára
hafa átt lögheimili á Íslandi samfellt síðustu 12 mánuði
vera í virkri endurhæfingu í umsjón heilbrigðismenntaðs fagfólks
Þar að auki verða önnur réttindi að vera fullnýtt.
Þetta á við um:
veikindarétt frá vinnuveitanda
sjúkrasjóð stéttarfélags
Þar að auki þarf að stöðva greiðslur:
úr fæðingarorlofssjóði
frá atvinnuleysissjóði Vinnumálastofnunar
Umsækjandi endurhæfingarlífeyris þarf að skila inn staðfestingum frá ofangreindum aðilum með umsókn sinni.
Ástæður synjunar
Umsóknum er synjað ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði. Til dæmis ef viðkomandi:
hefur ekki lokið áunnum rétti frá sjúkrasjóði stéttarfélags
hefur ekki lokið veikindarétti frá vinnuveitanda
hefur ekki átt lögheimili á Íslandi síðustu 12 mánuði
er ekki í endurhæfingu sem tekur á heildarvanda sem leiddi til óvinnufærnis
er ekki byrjaður í endurhæfingu / er í bið eftir úrræðum
er í það miklu námi eða vinnu að ekki er svigrúm til að sinna þeim endurhæfingarúrræðum sem taka á heilsufarsvanda
hefur lokið 36 mánaða endurhæfingartímabili og uppfyllir ekki skilyrði um framlengingu
hefur lokið 60 mánaða endurhæfingartímabili
Samskipti við Tryggingastofnun
Til að fá upplýsingar um stöðu umsóknar þarf að gefa upp leyninúmer umsækjanda.
Leyninúmer getur umsækjandi fundið á Mínum síðum.
Símatímar fyrir fagfólk vegna endurhæfingarmála eru alla virka daga milli klukkan 10 og 15 í síma 560 4400 eða 560 4430.
Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið endurhaefing@tr.is
Gögnum á að skila rafrænt í gegnum Mínar síður eða Signet Transfer. Ekki er tekið við gögnum í tölvupósti.
Hlutverk fagfólks
Hlutverk fagfólks sem hefur umsjón með endurhæfingu er að:
veita stuðning og ráðgjöf varðandi markmið og úrræði
gera endurhæfingaráætlun í samráði við einstaklinginn
ákveða tímaramma fyrir endurhæfinguna
senda tilvísun á viðeigandi endurhæfingarúrræði og sérfræðinga
leita leiða til að hefja endurhæfingu sem fyrst
fylgjast með framvindu endurhæfingar
Að hverju tímabili loknu þarf líka að:
leggja mat á endurhæfingu með upplýsingum um framvindu
gera endurmat á áætlun ef aukinni vinnufærni var ekki náð á tímabilinu
Hætti einstaklingur í endurhæfingu ber fagfólki skylda til að tilkynna það til TR.
Hlutverk Tryggingastofnunar
TR hefur eftirlit með:
að lífeyrisþegi sinni endurhæfingu sinni
að endurhæfingaráætlun sé framfylgt
að skilyrði fyrir endurhæfingarlífeyri séu að öðru leyti uppfyllt
Eftirlitið felst í því að fá upplýsingar í formi stuttrar greinagerðar um hvernig endurhæfing gekk á fyrra tímabili.
Umsjónaraðila endurhæfingaráætlunar ber að tilkynna Tryggingastofnun ef:
endurhæfingu er ekki sinnt í samræmi við fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun
einstaklingur hættir í endurhæfingu
Lög og reglugerðir
Endurhæfing - leiðbeiningar fyrir fagfólk - algengar spurningar
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun